Júlí 2019 4. tölublað 24. árgangur

5 F R É T TA B L AÐ E F L I N G A R - S T É T TA R F É L AG S Kjaramálin Orlofsuppbót fyrir fullt starf hvert orlofsár (var 48.000 kr. 2018) • 2. maí 2019 50.000 kr. • 1. júní 2020 51.000 kr. • 1. júní 2021 52.000 kr. • 1. júní 2022 53.000 kr. Eingreiðsla Eingreiðsla upp á 26.000 kr. kemur sem sérstakt álag á orlofsuppbót sem greiðist eigi síðar en 2. maí 2019 þannig að heildarorlofsuppbót er 76.000 kr. Launaþróunartrygging Launaþróunartrygging kemur til áhrifa verði launahækkanir, í prósentum, á almenna markaðnum hærri en launahækkanir samkvæmt samningi. Launaþróunartrygging greiðist sem krónutöluhækkun og bætist ofan á kauptaxta. Forsendur kjarasamninganna Forsendur kjarasamninganna eru að kaupmáttur launa aukist á samn- ingstímabilinu, vextir lækki verulega og haldist lágir út samningstímann og að stjórnvöld standi við gefin fyrirheit. Forsendur kjarasamninga verða metnar í september 2020 og september 2021. Forsendunefnd verður skipuð þremur fulltrúum frá hvorum samningsaðila. Heimilt er að segja upp samningi ef forsendur bresta. SA viðurkennir sjónarmið Eflingar Nýir kjarasamningar voru samþykktir í apríllok á almennum vinnumarkaði. Þeir komu strax til áhrifa með sautján þúsund króna launahækkun. Sumir atvinnurekend- ur reyndu þó að smeygja sér undan þessari kjarabót. Yfirmaður Capital Hotels bauð starfsfólki sínu að samþykkja kauplækk- un til móts við kjarasamningshækkunina, ellegar missa vinnuna. Efling sendi umsvifalaust bréf á hótelstjór- ann og afrit á Samtök atvinnulífsins. Ýmsir gallar voru á framkvæmd uppsagnarinnar og ráðningarkjörum starfsfólksins. Launa- lækkunin var hins vegar stærsta málið, enda er skrifað í kjarasamning að kauphækkanir skuli koma til, ekki bara á lágmarkstaxta, heldur á öll laun. Þetta ákvæði var sett í bókun „um almennar hækkanir“ árið 2011 og hefur haldist í kjarasamningnum við Samtök atvinnulífsins síðan. Þess vegna komu fyrstu viðbrögð Samtaka atvinnulífsins á óvart. Þau neituðu að uppsögn launakjaranna væri óeðlileg eða framkvæmd á rangan hátt og minntust ekki einu orði á þá tilætlun hótelstjórans að núlla út kjarasamningsbundna launahækk- un. Voru samtökin að gefa grænt ljós á að hunsa launahækkanirnar, jafnvel bókstaf samningsins? Miðstjórn Alþýðusambandsins tók undir áhyggjur Eflingar og áskildi aðildarfélög- um „rétt til þess að lýsa yfir einhliða riftun nýgerðra kjarasamninga við þessa sömu atvinnurekendur,“ hefja nýjar viðræður við þá og „beita til þess öllum tiltækum og lögmæt- um þvingunaraðgerðum [...] þar með talið verkföllum.“ En hvað ef það væri ekki bara einn atvinnu- rekandi? Hvað ef það er ekki bara einn hótel- stjóri sem tekur þessa afstöðu, heldur heildar- samtökin sem undirrituðu kjarasamninginn? Það var bara eitt til ráða; að auglýsa eftir fleiri dæmum um ámóta svindl og vísa ábending- um til lögmanns Eflingar. Svo voru Samtök atvinnulífsins boðuð á fund. Svindl-herferðin fór í gang í blöðum og á netinu og ábendingum var safnað. Herferðin minnti félagsmenn á að kjarasamningurinn átti að hækka launin þeirra og vakti fólk til umhugsunar um rétt yfirmanna til að lagfæra laun eftir hentisemi. Herferðin var áminning á báða bóga. Á fundinum áttu fulltrúar Eflingar ítarlegt samtal við fulltrúa SA um tilgang kjara- samninga og reglur um uppsagnir. Mála- lyktir urðu þær að samtökin sendu bréf á sína félagsmenn með þeim skilaboðum að það væri „mikilvægt að umsamdar launa- breytingar“ skiluðu sér „óskertar í launa- umslagið.“ Þau tilfelli af launaskerðingum „með beinni vísan til Lífskjarasamningsins“ væru „óheppileg tilvísun“. Efling fagnaði þessum afdráttarlausa stuðn­ ingi en hótelstjórinn hélt uppteknum hætti og sagði starfsfólki sínu ósatt um afstöðu stéttarfélagsins og hvernig málið hefði farið. Olli það starfsfólkinu talsverðri furðu þegar Efling gaf út yfirlýsingu um málið á ensku og pólsku þar sem aðrar upplýs- ingar komu fram en hótelstjórinn hafði haldið fram. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem einangrun erlends starfsfólks frá upplýs- ingastraumum samfélagsins hefur verið nýtt til að halda réttindum þeirra utan seil- ingar. Mál hótelstjórans og annarra fyrirtækja sem svindl-herferðin fletti ofan af eru nú í ferli hjá lögmanni og félagssviði Eflingar. Það var bara eitt til ráða; að auglýsa eftir fleiri dæmum um ámóta svindl og vísa ábendingum til lögmanns Eflingar Er verið að lækka launin þín?

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==