32
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Orlofshús
Svignaskarð
Það telst til meiriháttar tíðinda þegar
fréttir berast af því að nú standi til að
stækka orlofsbyggðina í Svignaskarði.
Þær hefðbundnu orlofsbyggðir verka
lýðshreyfingarinnar sem við þekkjum og
voru byggðar á árunum 1960 til 1975 í
öllum landsfjórðungum eru sannarlega
komnar til ára sinna en samt í fullu
gildi enn í dag og mikið notaðar. Hvergi
hefur þó verið um eiginlega stækkun
þeirra að ræða með fjölgun húsa heldur
hafa þær verið óbreyttar að stærð frá
upphafi.
Húsin í þessum byggðum hafa auðvitað verið
lagfærð í áranna rás, stækkuð og í sumum
tilfellum skipt út gömlum húsum fyrir ný eins
og vel er þekkt í Svignaskarði.
Fyrir nokkrum árum var tæplega 4 hektara
landspilda norðan við núverandi orlofsbyggð
í Svignaskarði skipulögð í þeim tilgangi að
byggja þar nýtt hverfi og samþykktu skipu-
lagsyfirvöld í Borgarbyggð tillöguna. Í fram-
haldi af því var svo gert samkomulag við Eirík
J. Ingólfsson byggingameistara í Borgarnesi
um að hann hefði heimild til að byggja hús
á svæðinu. Aðeins er heimilt að selja þau hús
til stéttarfélaga sem yrðu aðilar að Rekstrar-
félaginu. Þannig myndaðist stærri heild
sem skapar vonandi hagstæðari rekstur og
möguleika á betri og bættri þjónustu við gesti
staðarins.
Geta má þess að Eiríkur hefur verið viðloð-
andi Svignaskarð allt frá upphafi og komið að
byggingu og endurnýjun húsanna þar í öllum
áföngum sem unnir hafa verið.
Nú hafa sem sagt hafist framkvæmdir við
byggingu tveggja húsa á þessu nýja svæði í
Svignaskarði sem mun á endanum verða 16
húsa byggð. Í dag eru 30 hús á svæðinu í eigu
12
stéttarfélaga þannig að um mikla stækkun
verður að ræða. Framkvæmdir þessar munu
ekki trufla gesti núverandi byggðar þar sem
nýja hverfið er ofan hennar og með sér
aðkomuvegi.
Stefnt að stækkun byggðar!
Rafræn vefumsókn
um orlofsdvöl
um páskana 2013
Félagsmönnum býðst nú að skrá
umsókn um orlofshús páskana
2013
beint á vefsíðu Eflingar.
Sjá nánari upplýsingar inn á
Framkvæmdir við fyrsta grunninn á nýju svæði nú í desember
Eiríkur byggingameistari við lokafrágang á húsi Eflingar númer 24