46
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Sjúkrasjóðurinn
Glasa- og tæknifrjóvgunarstyrkur
Hægt er að fá styrk vegna glasa- og
tæknifrjóvgunar. Styrkurinn nemur
allt að 50.000 kr og er greiddur tvisvar
sinnum.
Auk fjölda annarra styrktegunda.
Kynntu þér styrkina á heimasíðu
félagsins
Athugið:
Allir styrkir sjúkrasjóðs eru sjálfstæðir og
útiloka því ekki greiðslu annarra styrkja
á sama 12 mánaða tímabili.
Heyrnartækjastyrkur
Sjúkrasjóður greiðir allt að 50.000kr
vegna kaupa á heyrnartækjum á
hverjum 36 mánuðum.
Krabbameinsskoðunarstyrkur
Sjóðurinn greiðir krabbameinsskoð-
un að fullu. Auk þess er kostnaður
við framhaldsskoðanir kvenna og
vegna blöðruhálskirtilsskoðana karla
endurgreiddur að upp að kr. 8.200,-
á hverjum 12 mánuðum.
Gleraugnastyrkur
Styrkur er veittur vegna kaupa á
gleraugum eða linsum og getur hann
numið allt að 15.000.- kr á hverjum
12
mánuðum.
Starfsendurhæfingarráðgjöf er
mikilvægur hluti af starfi sjúkra-
sjóðs
Þeir sem fá sjúkradagpeninga hjá
Sjúkrasjóði Eflingar eiga kost á
ráðgjöf hjá starfsendurhæfingarráð-
gjöfum á vegum Virk. Markmið
starfsendurhæfingar er að stuðla að
og flýta fyrir endurkomu sjóðfélaga á
vinnumarkað eftir veikindi/slys. Það
skiptir miklu máli að gripið sé fljótt
inn í og því er þeim sem fá sjúkra-
dagpeninga send kynningarbréf og
boðið kynningarviðtal hjá ráðgjafa
sem síðan getur leitt til margþættrar
aðstoðar við endurhæfingu.
Fjölbreytt réttindi úr sjúkrasjóði
Sjúkrasjóður Eflingar
Sjúkrasjóður Eflingar greiðir sjúkradagpeninga í 3–6 mánuði ef félagsmenn eru launalausir vegna veikinda eða slysa.
Upphæðir dagpeninga geta numið allt að 80–100% af meðallaunum. Auk dagpeninga bíður sjóðurinn upp á ýmsa styrki
vegna forvarna og fyrirbyggjandi aðgerða til að auka heilsufar og öryggi félagsmanna. Meðal styrkja sjúkrasjóðs eru:
Páskar - Páskar!
Munið að skila umsóknum um páskadvöl í orlofshúsum á réttum tíma!
Síðasti dagur til að skila umsókn er 4. febrúar,
úthlutað verður 11. febrúar.
Umsóknareyðublað fylgir þessu blaði