Page 12 - Fréttablað Eflingar - sept 2012

Basic HTML Version

12
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Námskeið
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja læra á
GPS tækið sitt og nýta það fyrir gönguferðir
um landið.
Námskeiðinu er skipt í 2 hluta.  Í fyrri hlut-
anum verður  farið yfir grundvallaratriði
varðandi virkni GPS tækja og notkun þeirra.
Farið verður í hvernig staðsetning er fengin
upp og hvernig vegpunktar eru settir inn til
leiðarvísunar. Einnig verður fjallað um helstu
öryggisatriði á ferðum, leiðarplan útbúið og
vegpunktar á áfangastað sett inn í GPS tækin
ásamt mikilvægum punktum á leiðinni.
Nám hjá Eflingu
Síðari hluti námskeiðsins er að mestu verklegur.
Þar sem GPS tækin virka eingöngu utandyra
verður farin stutt gönguferð um nágrennið þar
sem vegpunktar verða útbúnir og gengið eftir
þeim.
Einnig verður tekinn vegpunktur á leiðinni og
farið yfir hvernig hægt sé að nota GPS tækið til
að rata til baka.
2 skipti: Mið. 24. og 31. okt. kl. 19:00-21:10
Spennandi haust fyrir félagsmenn
Nú er kominn tími til þess að takast á við ný verk­
efni. Boðið er upp á handavinnu, matargerð og leið­
arvísanámskeið hjá Eflingu stéttarfélagi í Sætúni 1,
félagsmönnum að kostnaðarlausu. Allar tímasetn­
ingar og nánari upplýsingar um skráningu eru í
miðopnu blaðsins.
Lærðu betur á GPS tækið þitt
Marteinn S. Sigurðsson
Þátttakendur læra að hekla íslenskt lopateppi
með stjörnuhekli. Gefin verður uppskrift
af bæði stóru og litlu teppi. Teppið er í sex
litum: frá hvítu upp í hærusvart eða ljósmó-
leitu upp í sauðsvart. Þátttakendur sem ætla
strax að byrja á teppi kaupa 6 liti af plötulopa
og heklunál númer 6.
Í lítið teppi þarf 3 plötur af hverjum lit.
Samtals 18 plötur.
Í stórt teppi þarf 4 plötur af hverjum lit. Samtals
24 plötur.
Einnig geta þátttakendur gert prufu (dúkkuteppi)
og koma þá með plötulopa í þeim litum sem þeir
óska.
2 skipti: Fim. 13. og 20. september kl. 17:15-19:25
Heklað lopateppi með stjörnuhekli
Jórunn Sörensen
Námskeiðið er ætlað þeim sem aldrei hafa
heklað rússneskt hekl. Þátttakendur koma
með garn í ýmsum litum og rússneska heklu-
nál sem hæfir garninu.
1 skipti: Mið. 26. sept. kl. 17:15-19:25
Rússneskt hekl fyrir byrjendur
Jórunn Sörensen