14
F R É T T A B L A Ð E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
Nám
Eftirspurn hefur aldrei verið meiri
eftir fræðslustyrkjum og það er mjög
ánægjulegt, segir Sveinn Aðalsteins
son, framkvæmdastjóri Starfsafls,
fræðslusjóðs Flóabandalagsins og
Samtaka atvinnulífsins.
Við erum að sjá um 11% aukningu í fjölda
styrkja og um 14% aukningu í styrkupp-
hæðum. Þetta bendir til þess að þessi mikla
aukning í styrkveitingum sem varð eftir
bankahrunið, heldur bara áfram. Árið í fyrra
var þó algert metár hjá okkur, um 2.200
styrkir. Það stefnir því í enn eitt metárið sem
er mikið ánægjuefni, heldur Sveinn áfram.
Félagsmenn í Eflingu geta sótt um styrki í
alls konar nám, jafnt tómstundanám sem
starfsnám. Sem dæmi má nefna að hægt
er að sækja um styrk til greiðslu skólagjalda
í formlega skólakerfinu og til hvers kyns
námskeiða hjá t.d. símenntunarmiðstöðv-
unum (Mími o.fl.) og öðrum fræðsluað-
ilum. Einnig er hægt að sækja um styrki í
tómstundanám en þeir styrkir eru að jafn-
aði lægri en starfsmenntastyrkirnir. Styrk-
upphæð til starfsmenntunar er að hámarki
75% af kostnaði en aldrei meira en 60.000
kr á ári fyrir félagsmenn með full réttindi.
Hægt er að sækja um styrk til náms sem
hefst eftir 6 mánaða samfellda félagsaðild
en full réttindi fást yfirleitt ekki fyrr en eftir
9-12 mánuði fyrir fólk í fullri vinnu. Hluta-
starf gefur einnig réttindi en þá sem hluti af
fullum styrk.
Allar nánari upplýsingar er að fá á
skrifstofu Eflingar og á heimasíðunni
www.starfsafl.is
.
Sækið um fræðslustyrki!
Fróðlegt og skemmtilegt
Regieline Paran Sellope var í hópi
félagsliða sem tóku þátt í framhalds
námi um heilabilun hjá Mími símennt
un sl. vetur og sagði hún í samtali við
Eflingarblaðið að námið hefði allt verið
til fyrirmyndar.
Regieline Paran Sellope hóf störf við umönn-
un á Hrafnistu í Reykjavík fyrir ellefu árum
og útskrifaðist úr félagsliðanáminu vorið
2010. Hún sagði að félagsliðar sem vinna
með henni á Hrafnistu hefðu hvatt sig til
þess að koma með þeim á námskeiðið.
Námið stóð yfir í fjórtán vikur og var bæði
fróðlegt og skemmtilegt og skipulagið til
fyrirmyndar að hennar mati
Regieline segir að nemendur hafi verið mjög
duglegir að rétta henni hjálparhönd við
námið. Það hafi orðið til þess að hún hafi
stórbætt sig í að tala íslensku.
- segir Regieline Paran Sellope