3
OR L O F S B L AÐ
E F L I N G A R - S T É T T A R F É L A G S
2 0 0 5
Ágætu félagsmenn Eflingar
Nú þegar þið fáið í hendur hið árlega
orlofsblað Eflingar stéttarfélags er
það ótvírætt merki um að daginn sé
farið að lengja, að minnsta kosti um
eitt hænufet á dag. Það segir okkur
að kominn er tími til að huga að
sumrinu og samveru fjölskyldunnar
á þeim árstíma. Þá koma orlofssjóðir
stéttarfélaganna einmitt sterkir til
skjalanna með fjölbreytt framboð
ýmissa kosta sem stendur félags-
mönnum til boða.
Þó aðaláherslan hjá Eflingu í ár sé að
venju á hefðbundin orlofshús er ávallt
um fleira að ræða sem nýtist er að orlof-
inu kemur. Sem dæmi um slíkt í ár hjá
Eflingu má benda á hin sívinsælu Veiði-
og Útilegukort sem hafa verið í sölu til
félagsmanna og notið mikilla vinsælda.
Nú bætum við um betur og bjóðum
einnig upp á Golfkortið sem veitir hand-
höfum þess aðgang að gólfvöllum víðs
vegar um land á frábærum kjörum. Æ
fleiri stunda golf sem fjölskyldusport
og ekki að efa að margir munu nýta sé
þennan kost.
Á hverju ári höfum við kappkostað að
auka fjölbreytni í framboði með því að
taka á leigu hús vítt og breitt um landið
auk þess að skipta á húsum við önnur
félög. Vert er að benda á að nú koma inn
tvö ný hús á Vestfjörðum, raðhús á Þing-
eyri og lítið einbýli á Flateyri, sem ekki
hafa verið í boði áður. Þetta svæði hefur
verið afar eftirsótt af ferðamönnum
undanfarin ár enda Vestfirðir heillandi
fyrir ferðalanga. Er ekki að efa að fjöl-
margir munu freista þess að komast að
þar.
umgengni og frágangi í húsunum og
hann einn þarf að svara fyrir það ef eitt-
hvað fer úrskeiðis varðandi þessi atriði.
Því miður hefur borið á því að ekki sé
gengið frá í samræmi við reglur en sem
betur fer er þar um algerar undantekn-
ingar að ræða.
Einnig bendum við á að ávallt er reynt
að tryggja það að öll hús og búnaður
þeirra séu í sem allra besta lagi. Alltaf
geta komið upp óhöpp sem ekkert er við
að gera og eins getur búnaður húsanna,
t.d. kerfi heitu pottanna þar sem þeir
eru, bilað. Við slíku er brugðist eins
skjótt og kostur er en stundum verða
gestir að búast við að tíma taki að koma
hlutunum í lag.
Vert er að minna á að allar upplýsingar
sem máli skipta varðandi húsin, ferðir,
fyrirkomulag úthlutunar og fleira er að
finna í þessu blaði. Inni í blaðinu er
einnig umsóknareyðublaðið sem fylla
þarf út og rétt að minna á að til að auka
möguleika hvers og eins þá er best að
nýta alla 8 valmöguleikana, þannig skap-
ast mestu möguleikarnir á að fá úrlausn
og úthlutun.
Að lokum sendir orlofsnefnd Eflingar
öllum félagsmönnum bestu óskir um
ánægjulegt sumarfrí og að sem flestir
geti notið þeirra fjölmörgu möguleika
sem orlofssjóður býður upp á.
OR L O F S B L AÐ
E F L I NGA R - S T É T A R F É L
1 3
Orlofssjóður undirbýr sumarið
Metnaður og margt í boði!
Sumarferðir félagsins hafa ávallt notið
vinsælda enda oftast um að ræða mjög
vandaðar ferðir á spennandi staði og
verðið hagstætt. Árlega er farið í bæði
3 til 4 daga ferðir og einnig dagsferðir
síðsumars sem enda í glæsilegu kaffi-
hlaðborði. Lengri ferðin er kynnt ítarlega
hér á öðrum stað í blaðinu.
Umgengni og frágangur
Aldrei er nægjanlega brýnt fyrir félags-
mönnum að húsin eru eign okkar allra
og allir hvattir til að umgangast þau í
samræmi við það. Hús okkar eru afar vel
búin, mörg auk þess ný og stórglæsileg.
Leigutakinn er ávallt ábyrgur fyrir allri
Margir nýir kostir í
boði í sumar, kynnið
ykkur það nánar hér
í blaðinu
Ljósm.ÞorfinnurSigurgeirsson
1,2 4,5,6,7,8,9,10,11,12,13,...36