Orlofsblað Eflingar Sumarið 2021

46 ORLOFSBLAÐ EFLINGAR-STÉTTARFÉLAGS Ertu að fara í bústað? Við brottför: - þrífa húsið, grillið og heita pottinn. - ganga vel frá gluggum og hurðum, að allt sé lokað og læst. - skila lykli til umsjónarmanns eða í lyklabox. - ekki taka hita af húsinu við brottför. • Nauðsynlegt er að taka með lök, sængur- og kodda- ver, handklæði, viskastykki, borðtuskur, handsápu og salernispappír. • Orlofshús og íbúðir Eflingar eru með svipuðum búnaði, ætluð fyrir 5 til 10 manns eftir stærð. Öll helstu eldhús- áhöld eru til staðar; ísskápur, eldavél og örbylgjuofn. Sængur, koddar, barnastóll og barnarúm, sturta, sjónvarp, útvarp og gasgrill. • Leigutaka er óheimilt að framselja leigurétt sinn og dýrahald er alfarið bannað í orlofshúsum Eflingar. Brot á þessum reglum getur valdið því að viðkomandi félagsmað- ur verði útlokaður fá úthlutun framvegis. • Orlofshúsin eru sameign okkar, göngum um þau af alúð og sóma. Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið þá umsjónar- mann vita strax við komu, áður en nokkuð er aðhafst . Ef vanhöld eru varðandi þrif getur komið til þess að húsið verði þrifið á kostnað síðasta leigutaka. Þetta þarftu að vita: Orlofshús Eflingar er sameign okkar félagsmanna. Góð umgengni er okkar hagur! Mikilvægt er að kynna sér reglur og leiguskilmála. • Munið að hafa leigusamning meðferðis þegar farið er í orlofshús og lesa hann vel yfir. Leigusamning má nálgast rafrænt inn á bókunarvefnum, undir bókunarsaga. Framsal leigusamnings er stranglega bannað og varðar tafarlausri brottvísun úr húsi. • Á leigusamningi koma fram allar nauðsynlegar upplýs- ingar og skilmálar sem mikilvægt er að kynna sér vel þegar farið er orlofshús. Þar er að finna upplýsingar um hvar nálgast má lykla, númer á lyklaboxum og öryggis- hliðum þar sem við á, komu- og brottfarartíma, símanúm- er umsjónarmanns og fjölda svefnstæða. Vinsamlegast virðið uppgefinn fjölda gistirýma í hverju húsi . • Öllum húsum Eflingar fylgja efni til að þrífa, uppþvotta- lögur og burstar, gólfsápa og wc hreinsir. Gólfþveglar og moppur eru til staðar svo og kústar og ryksuga. • Leigutaki ber ábyrgð á húsinu og öllu sem því fylgir, frágangi og umgengni . Mikilvægt er að ganga vel frá og þrífa orlofshúsið við brottför. Ef ekki er þrifið nægilega vel að mati umsjónarmanns þarf að greiða þrifagjald. Munið! Hægt er að nálgast leigusamninginn rafrænt inn á bókunarvefnum, undir bókunarsaga.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==