Ferðaáætlun Ferðafélags Íslands 2020
SUMARLEYFISFERÐIR 5.d. Lokadag göngunnar er gömlum jeppaslóða fylgt frá Botna niður um Suðurárbotna og meðfram Suðurá að Svartárkoti. 15-16 km. Ekið til Akureyrar. Sjá nánar um ferð og bókun bls. 79. AUSTURLAND S22 Víknaslóðir 29. júlí-2. ágúst. 5 dagar Fararstjórn : Hjalti Björnsson. Brottför : Kl. 9 með rútu frá Egilsstaðaflugvelli. Göngusvæðið frá Borgarfirði eystri til Seyðisfjarðar er einu nafni kallað Víknaslóðir. Þar eru fallegir firðir og víkur, líparítfjöll og glæsileg fjallasýn. Gist á Borg í Borgarfirði og í skálum Ferðafélags Fljótsdalshéraðs í Breiðuvík, Húsavík og Loðmundarfirði. 1.d. , miðvikud. Ekið að Vatnsskarði og gengið í Stórurð sem er einstæð náttúruperla við þröskuld mikilfenglegra Dyrfjallanna. Þaðan er gengið til Borgarfjarðar eystri og gist á Borg. 19 km. 7-8 klst. 2.d. Gengið yfir Brúnavíkurskarð, Súluskarð og Kjólsvíkurvarp til Breiðuvíkur. 15 km. 6-7 klst. 3.d. Úr Breiðuvík er farið yfir Stóruá á göngubrú og í dalverpi sem er sannkölluð náttúruparadís, umkringt líparítblönduðumHvítuhnjúkum, Hvítafjalli og Hvítserki. Endað í Húsavík. 14 km. 5-6 klst. 4.d. Gengið yfir Neshálsinn en þaðan gefst gott útsýni yfir Loðmundarfjörð og yfir á Dalatanga sé skyggni gott. Gist í glæsilegum skála í Loðmundarfirði. 14 km. 6-7 klst. 5.d. Gengið út sunnanverðan Loðmundarfjörð og upp á Hjálmárdalsheiði, 600 m. Þegar komið er fram á brúnir Seyðisfjarðar er haldið niður brattar hlíðar niður á veg þar sem rútan bíður. 14 km. 6 klst. Verð : 65.000/70.000. Innifalið : Rúta, gisting, trúss og fararstjórn. HÁLENDIÐ S23 Með eilífðinni á Arnarvatnsheiði: Surtshellir, gígur, víðerni og veiði NÝTT 29. júlí-3. ágúst. 6 dagar Fararstjórn : Maríus Þór Jónasson. Brottför : Kl. 12 með rútu frá skrifstofu FÍ, Mörkinni 6. Afar fáfarin gönguleið, sem skipulögð er í samstarfi við Arinbjörn Jóhannsson á Brekkulæk í Miðfirði, um afréttir Borgfirðinga og Vestur-Húnvetninga. Lagt er upp frá vaði á Norðlingafljóti og farið meðfram Eiríksjökli og upp undir Langjökul. Þaðan er haldið norðvestur yfir Arnarvatnsheiði og niður í Miðfjörð. Bera þarf farangur fyrir utan mat. 1.d. , miðvikud. Ekið framhjá Húsafelli. Surtshellir skoðaður á leiðinni að Norðlingafljóti. Farangur fluttur í náttstað. Gengið í Álftakrók. Þar bíður hópsins heitur matur. Gist í gangnamannakofa. 9 km. 2.d. Gengið um vegleysur milli vatna að gangnamannakofa í Fljótsdrögum. Gist í tvær nætur. 18 km. 3.d. Gengið upp í gíginn Hallmund, semHallmundarhraun rann úr fyrir um 1100 árum og ef veður leyfir upp á Jökulstalla utan í Langjökli. 18 km. 4.d. Gengið frá Fljótsdrögum yfir Langajörfa og ,,lágan hvannamó”, yfir Skammá, milli Réttarvatns og Arnarvatns og meðfram Sesseljuvík að Lónaborg við Grandalón og gist þar í tvær nætur. 20 km. 5.d. Dvalið um kyrrt, veitt í matinn, fylgst með fuglalífi og heimsfriðnum andað að sér. Veiðin grilluð. 6.d. Gengin um 7 km leið upp á veginn sem liggur frá Arnarvatni stóra niður í Miðfjörð. Rúta ekur hópnum í sund á Hvammstanga. Eftir veglega máltíð á Brekkulæk í Miðfirði er ekið til Reykjavíkur. Verð : 98.000/103.000. Innifalið : Rúta, gisting í 5 nætur, matur (6 x kvöldverður, 5 x morgunverður, 5 x nesti), veiði, sund og fararstjórn. 59
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==