Kylfingur 2018

I KYLFINGUR I 11 Þorbjörn Guðjónsson , sérfræðingur í hjartasjúkdómum og keppandi í flokki 50 ára og eldri á Meistaramóti GR fór holu í höggi á öðrum keppnisdegi, en hann lék 13. holuna á Korpunni á einu höggi. Þetta er í fyrsta skipti sem Þorbjörn, sem er reynslumikill kylfingur með sex í forgjöf, nær þessu draumahöggi allra kylfinga. Þorbjörn valdi járn númer níu á teig, en holan var í um það bil 120 metra fjarlægð frá teig, frekar aftarlega á flötinni og skorin vinstra megin. Að sögn Þorbjörns miðaði hann hægra megin við flaggstöng. Höggið heppnaðist vel, boltinn lenti á flöt og tók brot til vinstri. Þar sem flötin liggur hærra en teigurinn gat Þorbjörn ekki verið viss um að boltinn hefði endað í holunni, fyrr en hann kom að holunni. En ætla má að hjartslátturinn hafi verið í hraðara lagi hjá hjartalækninum á leiðinni á flötina. Hola í höggi hjá hjartalækninum Það þótti vel við hæfi að heiðra Þorstein Svörfuð fyrir óeigin­ gjarnt starf fyrir GR í nær hálfa öld á Lokahófi meistaramóts klúbbsins sl. sumar. Þorsteinn Svörfuður hefur verið dómari á Meistaramótum GR frá 1972 og lætur engan bilbug á sig finna. Hann hefur unnið sjálfboðastarf fyrir GR í nær hálfa öld og hefur séð um dómarahornið í Kylfing, séð um nýliða- og dóm­ aranámskeið fyrir klúbbinn svo eitthvað sé nefnt. Þorsteinn Svörfuður Stefánsson, landsdómari í golfi, hefur sinnt fjölmörgum verkefnum fyrir golfhreyfinguna á Íslandi innanlands sem utan. Hann hefur dæmt í fjölmörgum Íslands- og Evrópumótum og þá hefur hann meðal annars dæmt leiki í Solheim-bikarnum, en svo nefnist keppnin milli Evrópu og Bandaríkjanna í kvennaflokki. ÞORSTEINN SVÖRFUÐUR HEIÐRAÐUR

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==