Kylfingur 2018

I KYLFINGUR I 47 Vel heppnað áramótapútt Um 200 GR-félagar mættu til leiks í Áramótapúttmót sem boðað var til á gamlársdag. Spilaðar voru 18 holur og svo var boðið uppá kaffi, kökur og konfekt fyrir og eftir leik og myndaðist góð stemning meðal þátttakenda. Glæsileg verðlaun voru í boði fyrir fimm efstu sætin. Baráttan um verðlaunin var hörð og kom „heimavöllurinn“ sterkur inn þar sem þrír af fimm verðlaunahöfum eru úr heldra genginu sem púttar 6 sinnum í viku allan veturinn. Sem segir okkur að æfingin skapar meistarann. Úrslitin urðu eftirfarandi: Þrír voru efstir og jafnir á 25 höggum og hlaut Haukur V. Guð­ mundsson efsta sætið eftir hlut­ kesti og Jónas Þorvaldsson varð annar. Stórkylfingurinn Guð­ mundur Ágúst varð að láta sér nægja þriðja sætið. Fjórða varð Ólöf Inga á 26 höggum með betri seinni hring en Hannes G. Sigurðs­ son sem var fimmti. Þetta var skemmtileg leið til að enda golfárið saman og þökkum við félagsmönnum fyrir þátt­ tökuna. Það má telja næsta víst að áramótapúttið sé komið til að vera fastur liður í starfi GR um ókomin ár. Golfklúbbi Reykjavíkur er sönn ánægja að kynna félagsmönnum sínum að framhald verði á Mercedes- Benz Holukeppni GR sem leikin var í fyrsta sinn sumarið 2017. Mikil ánægja var meðal félagsmanna vegna fjölbreyttara mótahalds og mjög góð þátttaka í mótinu. Gerður hefur verið samningur til næstu tveggja ára við Mercedes-Benz sem styrktaraðili mótsins og fögnum við því samstarfi. Sigurvegari Mercedes-Benz bikarsins hlýtur í verðlaun árgjald í GR fyrir árið 2019 og afnot af Mercedes-Benz bif­ reið í heila viku. Verðlaun fyrir annað sætið verður flugmiði til Evrópu auk afnota af Mercedes-Benz bifreið í heila viku. Í lok sumars verður svo öllum keppendum mótsins boðið til lokahófs í boði Mercedes-Benz á Korpúlfsstöð­ um. Um er að ræða glæsilegt lokahóf þar sem meðal annars verður dregið úr gjafabréfum til Evrópu. Við ætlum að halda áfram að hafa skemmtilegt á völlum okkar á árinu 2018 og verður fyrirkomulag mótsins eftirfarandi: Keppni hefst með 18 holu forkeppni sem stendur í heila viku, bæði fyrir karla og konur. Aldurstak­ mark er 19 ára og eldri. Hver keppandi má leika allt að 7 hringi í forkeppninni í þeirri viku sem forkeppnin stendur. Forkeppnin er punktakeppni Stable­ ford með fullri forgjöf. Hæst er gefin forgjöf 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Punktahæsti hringurinn gildir ef þátt­ takandi kaupir fleiri en einn hring í forkeppninni. Ef fleiri en 128 kepp­ endur skrá sig til leiks, komast 128 punktahæstu keppendurnir áfram í holukeppnina. Séu þátttakendur færri en 128 þá eru 64 keppendur sem komast í holukeppni (ef færri þá 32 eða 16). Dregið verður um leikröð milli þeirra sem komast áfram í holukeppnina. Þegar búið er að draga í fyrstu umferð raðast sjálfkrafa í næstu umferðir sam­ kvæmt töflu sem birt verður áður en mótið hefst. Eftir forkeppni verður birt hverjir mætast í útsláttarkeppninni. Gefin verða upp símanúmer og netföng keppenda. Einnig verða gefin upp tímamörk fyrir hverja umferð keppn­ innar. Keppendur sem mætast í hverj­ um leik fyrir sig koma sér saman um leikdag og leiktíma. Þeir geta komið sér saman um völl, hvort sem er Grafarholtsvöll eða Korpúlfsstaðavöll. Einnig geta þeir komið sér saman um að leika á einhverjum vinavalla GR. Holukeppnin er leikin með forgjöf sem fer þannig fram að mismunur á leikforgjöf keppenda raðast á 18 holur samkvæmt erfiðleikastuðli forgjafar eins og fram kemur á skorkorti. Kepp­ endur taka leikforgjöf samkvæmt for­ gjafartöflu. Þó skal enginn keppandi fá hærri leikforgjöf en 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Golfklúbbur Reykjavíkur þakkar Mercedes-Benz fyrir að vera styrktar­ aðili mótsins og hlakkar til áframhald­ andi samstarfs. Mercedes-Benz bikarinn 2018

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==