Kylfingur 2018
I KYLFINGUR I 51 Já, ég fékk í raun tvo ágæta skolla því ég fór í brautaglompur sem er tapað högg en svo fór mér að líða betur og pútterinn hitnaði. Púttin fóru að detta og þú lékst í raun frábærlega seinni níu holurnar? Seinni 9 eru erfiðari hér en ég hef sennilega verið of taugastrekktur í byrjun. Þú endar hringinn með stæl, fugl á 17. og 18. holunum og bara einn yfir pari eftir fyrsta hring? Já, það var ógeðslega gaman, tvö góð pútt í restina. það var æðislegt. Hvernig var svo hausinn fyrir seinni daginn? Hann var allt í lagi, par á fyrstu fjór um. Svo er mér refsað grimmt á 5. holu, slæ í glompu við grínið, alveg plöggaður, reyndi bara að ná boltanum upp og fór yfir flötina, sem má ekki, og endaði á þreföldum skolla og á þeirri sjöttu átti ég gott upphafshögg en húkkaði annað höggið út fyrir vallar mörk. Fimm yfir á tveimur holum, hvernig leið þér þá? Var ekkert að hugsa um hvert skorið væri. Hafði engan tíma til að hugsa um það, erfiðar holur framundan og ég einbeitti mér að þeim. Þú heldur áfram og kemst í smá gír? Fæ par og svo fugl á 9., par á næstu tveimur en fæ skolla á 12 sem er í raun
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==