Kylfingur 2018

I KYLFINGUR I 55 Hvernig var kylfusveinninn? Hann var frábær, hef aldrei verið með svona „ pró“ kylfusvein. Hann róaði mig niður á milli högga og lét áhorfendur heyra það ef þeir voru ekki kyrrir meðan ég sló. Hann skipti mig miklu máli þó það dygði ekki alveg. Hvernig var svo líðanin eftir að í ljós kom að þú kæmist ekki áfram? Drullusvekkjandi, búið að vera minn draumur alla tíð og ég ætlaði mað nýta mér þetta tækifæri miklu betur en raunin varð. Hvað tekurðu með þér eftir þessa reynslu? Ég þarf að fara upp um einn level, trúa á sjálfan sig og reyna að bæta örlítið alla hluta leiksins. Þetta hefur verið skemmtilegt? Já. Þó ég hafi ekki komist áfram er þetta skemmtilegasta mót sem ég hef tekið þátt í. Þegar ég labbaði eftir brautunum hugsaði ég; Hvað ertu búinn að koma þér útí – þetta er algjör snilld, sagði Haraldur og brosti.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==