Kylfingur 2018

I KYLFINGUR I 63 Á myndinni eru þrjár efstu sveitirnar, f.v.: sveit GK sem varð í öðru sæti, sigursveit GR fyrir miðri mynd og svo sveit GKG sem hafnaði í því þriðja. Íslandsmót golfklúbba 2018, í 1. deild kvenna, fór fram dagana 10.–12. ágúst nú í sumar. Sveit GR fagnaði sigri og var þetta fjórða árið í röð þar sem GR fagnar titlinum og hefur GR unnið þetta mót í 20. skipti alls. GR sat hjá í fyrstu umferð sigraði svo GM 4-1 í annarri umferð og í þriðju vannst svo naumur sigur á GS og í þeirri fjórðu vannst sigur á GKG 4-1. GR hafði svo betur gegn GK í æsi­ spennandi úrslitarimmu sem lauk með naumum sigri okkar kvenna 3-2. Ragnhildur Sigurðardóttir, Ragnhild­ ur Kristinsdóttir, Halla Björk Ragnars­ dóttir, Saga Traustadóttir, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, Gerður Hrönn Ragnars­ dóttir og Eva Karen Björnsdóttir skipuðu sveit GR. Árni Páll Hansson var liðsstjóri og Snorri Páll Ólafsson sérlegur aðstoðarmaður. Kylfingur óskar okkar konum til ham­ ingju með frábæran árangur eitt árið enn. Íslandsmót Golfklúbba GR ÍSLANDSMEISTARI KVENNA 2017 2018

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==