Kylfingur 2018
74 I KYLFINGUR I Yngri kynslóð kylfinga úr Golfklúbbi Reykjavíkur hélt af landi brott í tvær æfingaferðir í vetur eftir að hafa æft af miklum krafti inni á Korpu og í frosthörkunni í Básum. Það var kærkomið fyrir þau að komast loks á grænt græs við bestu mögulegu aðstæður til æfinga og golfleiks í sólinni á Spáni. La Sella Í lok janúar héldu 20 af okkar bestu kylfingum ásamt atvinnumönnum og þjálfurum í æfingaferð til La Sella á Spáni. Hefðbundinn dagur í ferðinni var þannig uppsettur að hópurinn spilaði golf fyrir hádegi þar sem m.a var lögð áhersla á lágt skor að fá sem flesta fugla með réttu hugarfari og ákvarðanatöku, eftir hádegi voru svo skipulagðar æfingar með mesta áherslu á stutta spilið. Jussi Pitkanen lands liðsþjálfari Íslands kom svo í heimsókn, tók þátt í æfingum og fylgdist með kylfingunum við leik á vellinum og miðlaði í fyrirlestrarformi til kylfinga og þjálfara. Eftir kvöldmat var dagurinn yfirleitt gerður upp og þau eldri og reyndari miðluðu til þeirra yngri. Ferðin gekk eins og í sögu og það skein í gegn hvað við GR-ingar eigum samstilltan hóp efnilegra kylfinga sem nálguðust verkefnin eins og atvinnu menn. Novo Sankti Petri Börnum og unglingum sem æfa hjá GR stendur til boða að fara í æfingaferð að vori til og eiga kost á að selja saltfisk yfir veturinn til þess að greiða niður ferðina, foreldrar og forráðamenn eru ómissandi partur af ferðunum sem hafa tekist með eindæmum vel undanfarin ár. Í byrjun apríl hélt rúmlega 70 manna hópur barna, unglinga, forráðamanna og þjálfara til Novo Sankti Petri á Spáni. Krakkarnir spiluðu fyrir hádegi þar sem aldurshópum var blandað saman í ráshópa þar sem þau yngri gátu lært af þeim eldri sem voru dugleg að gefa af sér. Eftir hádegismat voru svo skipulagðar æfingar á frábæru æfingasvæði þar sem auðvelt er að gleyma sér framm í myrkur við æfingar. Á meðan krakkarnir voru í sínu prógrammi spiluðu foreldrarnir saman á milli þess sem þau nutu sín í sólinni. Mikið var af nýjum andlitum barna sem voru í raun að stíga sín fyrstu skref á golfvellinum og stóðu þau sig með stakri prýði. Allur hópurinn sýndi framfarir á golfvellinum dag frá degi sem er virkilega ánægjulegt eftir þrotlausar æfingar í frostinu heima í vetur. Til þess að hrista hópinn enn betur saman var blásið í Texas Scramble mót þar sem flestir liðsmenn voru á aldursbilinu 8–20 ára. Mótið var virkilega skemmtilegt og mörg góð skor litu dagsins ljós og allir lögðu sitt að mörkum. Síðasta daginn var svo haldið mót hjá krökkunum og foreldrunum þar semmargir lækkuðu forgjöfunina sína. Um kvöldið var haldin verðlaunaafhendingu og lokahóf sem var lokahnykkurinn á frábærri ferð hjá frábærum hóp. Árni Páll Hansson GR-ingur með meiru var fararstjóri á vegum Heimsferða í ferðinni og færum við honum bestu þakkir fyrir góða fararstjórn, liðlegheit og einstaka skemmtun! Snorri Páll Ólafsson Yngri kynslóðin á Spáni
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==