Kylfingur 2018

76 I KYLFINGUR I Jón Þór Ólafsson póstmaður: Hvenær varðstu félagi í GR? Gekk í GR 1988. Af hverju varð golf fyrir valinu? Tveir félagar mínir, bræðurnir Jón Karl og Karl Ómar Karlssynir drógu mig og annan vin okkar í golf og ég heillaðist alveg frá byrjun en vinurinn entist bara í tvö ár og hætti svo. Þess má geta að bræðurnir Jón Karl og Karl Ómar fást báðir við golfkennslu í dag. Hver er forgjöfin í dag? 13,6. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Það hefur gengið á ýmsu eins og er eflaust hjá flestum en ég verð þó að minnast á að ég vann mót sem haldið var í Bakkakoti og hét International Pairs. Ég rústaði því móti. Hefurðu farið holu í höggi? Já, ég fór holu í höggi á 13. holuni á Korpunni 30. júlí 2017. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Það var þegar ég fór holu í höggi í fyrra og þetta reyndist svo besti hringur sem ég hef spilað, fugl á annarri, par á þeirri þriðju, svo fékk ég örn á sjöundu holunni og eins og áður hefur komið fram kórónaði ég hringinn með holu í höggi á þeirri þrettándu. Það gekk svo á ýmsu hinar holurnar eins og gengur hjá mér en niðurstaðan varð 82 högg. Sem gerði það að verkum að ég lækkaði úr 15,9 niður í 13,6 sem er forgjöfin í dag. Stefna sumarsins er að fara niður fyrir 12 í forgjöf. Ég var hér um árið staddur á Spáni í fríi og fékk þá flugu í höfuðið að leigja mér sett og taka 18 holur á golfvelli rétt hjá Benidorm sem ég hefði betur látið eiga sig. Ég æddi á teiginn í 40 stiga hita, húfulaus en var þó með tvo lítra af vatni með mér sem ég var búinn með strax á þriðju holu og framhaldið var vægast erfitt og Þjóðverjinn sem ég var að leika með leist ekkert á blikuna og bannaði mér nánast að halda áfram eftir 9 holur enda ég löngu kominn með sólsting og vissi hvorki í þennan heim né annan. Þrátt fyrir að fá mér bjór á bjór ofan var ég þrjá tíma að jafna mig. Þetta var mikil lífsreynsla sem ég gleymi seint. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Það er án nokkurs efa Haraldur Franklín Magnús. Ég lenti fyrir tilviljun með honum í holli, ekki í neinu móti þó, og það var reglulega gaman að spila með honum, alltaf léttur og skemmtilegur. Það var æðislegt að sjá hann spila en ég vann þó eina holu vegna þess að hann sló „out of bounds“ að mig minnir eða var með einhverjar æfingar. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Ég hef ekki farið erlendis að leika golf svo ég hef ekki úr mörgum völlum að velja. En Hvaleyrarvöllurinn var alveg æðislegur viku fyrir Íslandsmótið í fyrra. Mjög erfiður fyrir svona háforgjafarmann eins og mig. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Mætti gera meira fyrir Thorsvöllinn, gera nýja flöt á annarri og níundu. Svo er þriðja brautin ekki góð. Þyrfti að slétta hana og fá nýjan teig þar. Eitthvað að lokum? Mjög sáttur í GR. ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ!

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==