Kylfingur 2018

78 I KYLFINGUR I Böðvar Bragi Pálsson hlýtur Háttvísibikarinn 2017 Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig. Böðvar Bragi Pálsson hlýtur viður­ kenninguna í ár. Böðvar er mikil fyrir­ mynd fyrir aðra iðkendur. Hann er mjög duglegur við æfingar og hefur sýnt jafnar og góðar framfarir sein­ ustu árin. Böðvar varð Íslandsmeistari í högg­ leik 14 ára og yngri í ár og sigraði á þremur mótum á Íslandsbankamóta­ röðinni. BöðVar varð Stigameistari í sínum flokki á Íslandsbankamóta­ röðinni. Í sumar setti Böðvar vallar­ met á bláum teigum (sjórinn/áin) er hann lék á 66 höggum á Icelandair Cargo mótaröðinni. Golfklúbbur Reykjavíkur óskar Böðv­ ari Braga til hamingju með Háttvísi­ bikarinn 2017. 2004 Þórður Rafn Gissurarson 2005 Hanna Lilja Sigurðardóttir 2006 Guðni Fannar Carrico 2007 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2008 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2009 Andri Þór Björnsson 2010 Guðmundur Ágúst Kristjánsson 2011 Sunna Víðisdóttir 2012 Ragnhildur Kristinsdóttir 2013 Saga Traustadóttir 2014 Ingvar Andri Magnússon 2015 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir 2016 Dagbjartur Sigurbrandsson 2017 Böðvar Bragi Pálsson Er þetta í 14 skipti sem bikarinn er afhentur og þeir sem hafa áður fengið útnefninguna eru eftirfarandi kylfingar:

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==