Kylfingur 2018

I KYLFINGUR I 83 Eins og undanfarin ár þá erum við í afreksstarfi Golfklúbbs Reykjavíkur alltaf að reyna að bæta okkur. Ein af þeim nýj­ ungum sem við settum í gang þetta árið er að bæta andlega þáttinn hjá iðkendum okkar. Heimsins bestu kylfingar hafa lagt á það mikla áherslu hversu andlegi þátturinn sé mikill hluti leiksins. Við fengum til liðs við okkur Bjarna Fritz, sem er sálfræði­ menntaður og fyrrum landsliðs- og atvinnumaður í handknatt­ leik, þjálfari U-20 ára landsliðsins, mfl. ÍR í handknattleik og rit­ höfundur. Hann er eigandi sjálfstyrkingar­ fyrirtækisins Út fyrir kassann sem sérhæfir sig í að halda nám­ skeið og fyrirlestra fyrir börn, ungt fólk, foreldra og íþróttafólk sem stefnir hátt. Fyrsti fyrirlestur Bjarna var haldinn fyrir foreldra iðkend­ anna og tókst vel. Í framhaldinu voru síðan haldnir tveir fyrir­ lestrar til viðbótar þar sem yngri iðkendum var boðið og síðan sér fyrirlestur fyrir afrekshóp­ ana. Þáttakendur voru beðnir að skrifa pælingar sínar um starfið og hver gildin ættu að vera. Eftir skemmtilegar umræð­ ur varð til fínt plagg sem unnið verður eftir. Bjarni mun vinna með kylf­ ingum okkar og hjálpa þeim að styrkja andlega hluta golf­ íþróttarinnar og um leið sjálfs­ mynd þeirra sjálfra. Ingi Rúnar Gíslason íþróttastjóri GILDIN OKKAR LIÐSHEILD • Standa saman • Styðja hvert annað VIÐ ERUM GR • Sigurvilji • Virðing AGI • Undirbúningur • Stundvísi EIGIN LEIÐTOGI • Treysta á sjálfan sig • Láta verkin tala FAGMENNSKA • Gera það sem er rétt • Taka ábyrgð AFREKSHÓPUR GOLFKLÚBBS REYKJAVÍKUR

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==