Kylfingur 2018
86 I KYLFINGUR I Það er gaman til þess að vita að elstu kylfingar GR láta sér ekki leiðast yfir háveturinn. Það er púttað á Korpu loftinu alla virka daga, Thorsvöllurinn spilaður þegar viðrar og svo síðast en ekki síst eru það bingóin hans Kalla Jó sem slegið hafa í gegn. Undirritaður var meðal viðstaddra á lokabingói vetrarins og átti fullt í fangi að fylgjast með og þurfti oftar en ekki að fá aðstoð hjá sessunautum. Því þetta er ekkert venjulegt bingó, heima tilbúin spjöld unnin af aðalmanninum Kalla. Bingóspjaldið, alla vega að þessu sinni, var með 20 ferhyrningum á annarri hliðinni og sumstaðar hringir inní ferhyrningunum, á hinni hliðinni voru eitthvað færri ferhyrningar og stór hringur á miðju spjaldi. Áður en leikur hófst höfðu þátttakendur 10 mínútur til að fylla út spjaldið með sínum eigin tölum og skyldu þær vera frá einum og uppí fjörutíu. Ótal útfærslur eru í bingóinu hjá Kalla og má til dæmis nefna að loka umferðin var þannig að allir þátttak endur standa uppréttir með eina tölu í stóra hringnum aftan á spjaldinu og sá sem átti töluna sem lesin var upp settist niður og var þar með úr leik og sigurvegarinn er sá sem eftir stendur er aðrir eru sestir. Að þessu sinn fór það þannig að tvö stóðu eftir með töluna 40 og þá átti að draga um úrslitin en undirrituðum sýndist Kalli hafa verðlaun handa þeim báðum svo ekkert varð úr því. Karl Jóhannsson stendur fyrir þessu einn og sjálfur og er eins og herforingi og grípur til flautunnar oftar en ekki ef hann þarf að fá hljóð. Að endingu tilkynnti hann svo dag skrá næsta vetrar svo það verður ekki annað sagt að þetta sé í öruggum höndum hjá kalli. Bingódagar vetrarins 2018 eru: 21. sept., 19. okt., 23. nóv. og 21. des. 2019: 25. jan., 22. febr., 22. mars og lokadagurinn 12. apríl. HBK Pútt og bingó!
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==