Kylfingur 2019

I KYLFINGUR I 23 Á vordögunum hófst uppsetning á TrackMan Range kerfi á æfingasvæði Golfklúbbs Reykjavíkur í Básum. Trackman Range er einstakt kerfi sem gerir notendum Bása mögulegt að sjá högglengd, höggstefnu, boltahraða og fleiri mikil­ vægar upplýsingar sem nýtast vel við æfingar. Trackman Range gjörbreytir allri aðstöðu til æfinga Trackman Range er ný og byltingakennd radar mælingatækni fyrir golfæfingasvæði sem veitir kylfingum lykilupplýsingar um hvert slegið högg og gjörbreytir allri aðstöðu til æfinga í Básum. Þegar högg hefur verið slegið mæla radarar sem staðsettir eru á æf­ ingasvæðinu flug boltans á sjálfvirkan hátt. Nákvæm lengd bolta á flugi, hraði og ferill boltans er sýndur í rauntíma á spjaldtölvu eða snjallsíma kylfings á einfaldan og skýran hátt. Þetta nýja kerfi býður kylfingum einnig upp á ýmsa leiki sem gera æf­ ingu að leik fyrir alla kylf­ inga auk þess að kynna íþróttina á skemmtilegan hátt fyrir þeim sem eru að byrja. Leikir sem TrackMan Range býður upp á eru t.d. Næstur pinna (Bullseye), Fangaðu flaggið (Capture the flag) og Lengsta högg (Hit it). Kerfið er í stöðugri þróun í undirbúningi er ný viðbót sem gefur kost á að leika ýmsa heimsþekkta golfvelli. Grafarholtsvöllur og Korpúlfsstaðar­ völlur verða meðal þeirra valla sem hægt er að leika en auk þeirra stendur val um Innisbrook Copperhead (US), Muirfield Village (US), PGA National (US), Royal Birkdale (UK), Royal Troon (UK), St. Andrews Castle Course (UK), St. Andrews Jubilee Course (UK), St. Andrews New Course (UK), St. Andrews Old Course (UK) og The Grove (UK) svo eitthvað sé nefnt. Á 1. hæð eru 8 básar útbúnir með spjaldtölvum, aðrir básar á 1. og 2. hæð eru einnig með standi þar sem kylfingar geta notað sinn eigin snjallsíma eða spjaldtölvu til mælinga, einnig er hægt að tengjast kerfinu á 3. hæðinni en þar eru básarnir ekki sérstaklega útbúnir. Athugið að til þess að nýta tæknina þurfa kylfingar að ná í app á snjalltæki sitt. Appið heitir einfaldlega TrackMan Range. Appið er með þægilegt og einfalt viðmót og auðvelt er að læra á það. Til þess að tengjast kerfinu þurfa kylfingar að vera staðsettir í Básum en til að flýta fyrir notkun í fyrsta sinn er hægt að ná í TrackMan Range appið – hægt er að nálgast appið bæði í App Store og Play Store í símanum. Þegar mætt er í Bása tengið símann við TrackMan Wi-Fi og sláið inn lykilorð sem uppgefið er á staðnum. Síðan er bara að opna appið og fylgja leiðbeiningum á skjá. Reynslan þessa mánuði sem kerfið hefur verið í notkun hefur verið mjög góð. Almennt finnst kylf­ ingum mun skemmtilegra að slá þegar upplýsingar koma fram um högglengd. Fram kemur hve boltinn flýgur langt (carry) og hvað hann fer langt með rúlli (total). Einnig kemur fram hve hátt boltinn flýgur, hraði boltans og hve hratt boltinn flýgur upp, mælt í gráðum. Æfingaboltarnir fljúga styttra en hefðbundnir golfboltar. Hægt er að velja í TrackMan Range appinu með hvaða kylfu slegið er og með því að virkja stillinguna CONVERT þá um­ reiknar kerfið hvað venju­ legur golfbolti myndi fljúga. Á æfingasvæðinu eru 10 skotmörk. Í appinu er hægt að velja skotmark og sjá hve langt boltinn lendir frá skotmarkinu. Þetta gerir æfingar bæði mark­ vissar og skemmtilegar. Appið sýnir bæði hvað boltinn lendir langt frá skotmarkinu og hve mikið hann var út úr stefnu. Í leikjunum sem nefndir BYLTING Í ÍSLENSKU GOLFI TRACKMAN RANGE – sett upp í Básum í samstarfi við N1 hf. og Landsbankann Við undirritun samningsins, Ómar Örn Friðriksson framkvæmdastjóri GR og Hinrik Örn Bjarnason framkvæmdastjóri N1 hf. „Vottar“ voru afrekskylfingarnir Finnur Gauti Vilhelmsson og Dagbjartur Sigurbergs­ son.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==