Kylfingur 2019

60 I KYLFINGUR I Snorri Páll Ólafsson hefur verið ráðinn yfirþjálfari GR. Snorri hefur sinnt starfi ungmennaleiðtoga og komið að þjálfun barna, unglinga og afrekskylfinga í Golfklúbbi Reykjavíkur undanfarinn áratug og er því flestum iðkendumog foreldrum kunnugur. Nýtt starf snýr að því að halda utan um skipulag starfsins í heild, tryggja gott samskiptaflæði við foreldra og alla iðkendur í starfinu. Samhliða því mun Snorri sinna sér­ staklega þjálfun meistaraflokka og afrekskylfinga GR. Derrick Moore hefur um árabil verið einn af fremstu golf­ kennurum landsins og tekur, í sumar, við starfi ungmenna­ leiðtoga af Snorra. Það er mikill fengur að fá Derrick inn í þjálfarateymið en hann hefur fjórum sinnum hlotið titilinn PGA kennari ársins. Derrick er mörgum félögum GR kunn­ ugur en hann sinnti kennslu meðlima, barna, unglinga og afrekskylfinga á árunum 1999–2006 við góðan orðstír. Derrick hefur komið að þjálfun margra afrekskylfinga í fremstu röð í gegnum árin, þeirra á meðal er Ólafía Þórunn Kristinsdóttir atvinnukylfingur úr GR. Derrick mun að mestu sinna þjálfun í barna- og unglingastarfinu ásamt David George Barnwell, yfirþjálfara barna og unglingastarfs GR, og munu þeir félagar auk þess koma að þjálfun og ráðgjöf til afrekskylfinga GR. Þeir Snorri, David og Derrick munu vinna náið saman að því að tryggja ungum kylfingum á öllum getustigum, ásamt afrekskylfingum klúbbsins, sem besta þjónustu og jákvætt umhverfi til iðkunar golfíþróttarinnar. Um leið viljum við þakka Inga Rúnari Gíslasyni, sem lét af störfum sem íþróttastjóri klúbbsins í byrjun árs, fyrir frábært starf og óskum honum velfarnaðar í nýjum verkefnum. Snorri Páll Ólafsson ráðinn yfirþjálfari GR – Derrick Moore ráðinn ungmennaleiðtogi í sumar Frá vinstri: David George Barnwell, Snorri Páll og Derrick Moore. Formannabikarinn Á hverju hausti heldur GR golfmót, punktakeppni, undir nafninu Formanna­ bikarinn. Boðnir eru til leiks fyrrverandi og núverandi stjórnarmenn. Mótið var haldið að þessu sinni 25. september á Korpunni, Landið/Áin. Kvöldverður og verðlaunaafhending fór svo fram að leik loknum á efri hæð Korpunnar. Á myndinni eru verðlaunahafarnir ásamt formanni GR. Fv.: Regína Sveins­ dóttir, sigurvegarinn Ragnar Baldursson, Hans Isebarn og Björn Víglundsson.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==