Kylfingur 2019

I KYLFINGUR I 67 Elvar Már Kristinsson hlýtur Háttvísibikarinn 2018 Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig. Elvar Már Kristinsson hlýtur viður­ kenninguna í ár. Elvar er mikil fyrir­ mynd fyrir aðra iðkendur. Hann er mjög duglegur við æfingar og hefur sýnt jafnar og góðar framfarir sein­ ustu árin. Elvar hafnaði í öðru sæti á lokamóti Íslandsbankamótaraðarinnar. Elvar er frábær fyrirmynd fyrir aðra iðkendur bæði innanvallar sem utan. Golfklúbbur Reykjavíkur óskar Elvari Má til hamingju með Háttvísibikarinn 2018. 2004 Þórður Rafn Gissurarson 2005 Hanna Lilja Sigurðardóttir 2006 Guðni Fannar Carrico 2007 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2008 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2009 Andri Þór Björnsson 2010 Guðmundur Ágúst Kristjánsson 2011 Sunna Víðisdóttir 2012 Ragnhildur Kristinsdóttir 2013 Saga Traustadóttir 2014 Ingvar Andri Magnússon 2015 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir 2016 Dagbjartur Sigurbrandsson 2017 Böðvar Bragi Pálsson 2018 Elvar Már Kristinsson Er þetta í 15. skipti sem bikarinn er afhentur og þeir sem hafa áður fengið útnefninguna eru eftirfarandi kylfingar:

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==