Kylfingur 2020

I KYLFINGUR I 17 Guðmundur Ágúst og Valdís Þóra valin kylfingar ársins 2019 Golfsamband Íslands hefur valið þau Guðmund Ágúst Kristjánson, GR og Valdísi Þóru Jónsdóttir Jónsdóttir, GL sem kylfinga ársins 2019. Þetta er í 22. skipti þar sem tveir einstaklingar eru valdir sem kylfingar ársins hjá GSÍ, kona og karl. Þetta er í þriðja sinn sem Valdís Þóra fær þessa viðurkenningu en í fyrsta sinn sem Guðmundur Ágúst fær þessa viðurkenningu. Guðmundur Ágúst, sem er 28 ára, varð Íslandsmeistari í höggleik á árinu í fyrsta skipti. Hann lék á Nordic Golf League atvinnumannamótaröðinni þar sem hann sigraði á þremur mótum og vann sér um leið þátttökurétt á Áskorendamótaröðinni semer næststerkasta atvinnumannamótaröð í Evrópu. Hann komst inn á lokaúrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina. Guðmundur hóf árið í 1656. sæti á heimslista atvinnumanna en er nú efstur Íslendinga í 558. sæti. Árið 1973 var fyrsta kjörið hjá GSÍ á kylfingi ársins. Birgir Leifur Hafþórsson hefur oftast verið kjörinn kylfingur ársins í karlaflokki eða alls 11 sinnum. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er sú sem oftast hefur fengið þessa viður­ kenningu hjá konunum eða alls sex sinnum. Tekið úr frétt á golf.is

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==