Kylfingur 2020

I KYLFINGUR I 27 Margir af vinum mínum verja nú frítíma sínum í göngur um grænar grundir og eru þar flest allar stundir Í golfiðkun hella sér flestir á golfvöllum fastagestir og þegar þeir eru heima sportinu alls ekki gleyma Fátt um annað þeir ræða um golfiðkun vilja alla fræða og útskýra tækni og fleira hvort sem fólk vill um það heyra Þeir sökkva sér djúpt í golffræði þá grípur allsherjar æði og þegar þá skortir gæði grípur þá suma nokkra bræði Mig langar að segja frá einum með golfdellu í sínum beinum Fjölskyldufaðir mildur og góður sem á golfvelli varð alveg óður Hann tók þetta föstum tökum en þeytti stundum upp þökum þótt á boltann sinn einbeittur starði hann stundum í jörðina barði Golfhringi spilaði marga og langaði þá oft að garga ef lenti hann utan við braut var lega hans allsherjar þraut Það var eins og alheimsins vættir væru allir á golfvöllinn mættir og legðu þar líf sitt að veði að gera honum gramt í geði Þó hann hagaði sér eins og álfur og hann sveiflaði rétt eins og kálfur þá vissi hann að í þessu geimi væri hann óheppnastur í heimi Svo hætti hann boltann að hitta hann prófaði sveifluna að stytta púttin öll fór hann að banka og önnur högg endalaust sjanka Við þetta mátti ekki búa hann varð gæfu sinni að snúa sportið var hann alveg að æra til kennara fór hann að læra Kennarinn reyndi að meta hver væri í raun hans geta sagði hann þyrfti nokkra tíma þetta yrði all nokkur glíma Eftir daglega kennslu í vikur stóð hann á vellinum kvikur minnkaði ekki hans vandi er teighöggið endaði í sandi Í blíðviðri sólskini og golu í glompunni gróf hann sér holu hann bönkerinn barði í kekki en upp vildi boltinn alls ekki Næsta teighögg endaði í vatni og haldið þið að skapið þá batni nei, því golfsettið núna það flaug langt út í grugguga laug Ekki vantaði hann stílinn eftir kastið arkaði í bílinn birtist þó bráðlega aftur búinn var þó allur kraftur Út í tjörnina sneyptur hann óð fann settið og dró upp á lóð opnaði pokann sinn með þótti og bíllykla sína hann sótti Angist hans næstum mig grætti er hann gallharður golfiðkun hætti það entist í tuttugu tíma þá átti hann næst rástíma Atli Þór Þorvaldsson

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==