Kylfingur 2020
32 I KYLFINGUR I Hvenær varðstu félagi í GR? Ég gekk í GR árið 2005. Af hverju varð golf fyrir valinu? Golfáhugi minn fór mjög hægt af stað, ég hafði engan sérstakan áhuga á golfi, mitt sport var skokk og götuhlaup en svo neyddist ég til að hætta því og þá fór ég í rólegheitum að leita að öðru útisporti. Á þeim tíma voru báðir strák arnir mínir í golfi í GR og eiginmaðurinn líka. Þeir hvöttu mig til að koma með á völlinn og ég tók að mér að vera kylfu beri hjá mínu fólki til að kynnast golf inu. Ég þótti ekki góð í því hlutverki ég hafði alltaf meiri áhuga á gróðrinum og umhverfinu á golfvöllunum en íþrótt inni og átti það til að trufla óvart ein beitingu leikmanns með ábendingum um gróðurfar. Eftir að hafa fengið falleinkun sem kylfuberi ákvað ég að fara á námskeið fyrir byrjendur í golfi og þessi námskeið urðu nokkur og áhuginn á golfinu fór vaxandi. Eftir minnilegasta námskeiðið var helgar námskeið fyrir konur, sem var haldið á Grafarholtinu, leiðbeinandinn var kona sem var fyrrverandi leikmaður á LPGA mótaröðinni en þó skömm sé frá að segja þá man ég ekki nafnið hennar. Það sem skipti líka máli var að á þessu námskeiði og öðrum hef ég hitt konur á mínum aldri sem voru líka byrjendur í golfi og mér finnst konur á golf námskeiðum yfirleitt ná vel saman og vera duglegar að hvetja hverjar aðra. Þrátt fyrir mörg námskeið og vaxandi áhuga fannst mér ég ekki hafa tíma til að hella mér út í þetta fyrr en ég hefði lokið tímafreku námi sem ég var í en lofaði sjálfri mér því að þegar náminu væri lokið tæki ég þann tíma sem ég þyrfti til að komast inn í golfið, það væri þá hægt að hætta ef mér líkaði það ekki. Ég stóð við það sem ég lofaði sjálfri mér og eftir að ég hellti mér í golfið hefur mér aldrei dottið í hug að hætta. Korpan eða Grafarholtið? Korpan er minn völlur og mér finnst völlurinn, bæði brautirnar og flatirnar, batna með hverju árinu og þakka fyrir hvað er vel hugsað um völlinn minn. Korpuvellirnir eru eins og hleðslustöð, mér finnst ég alltaf fara af vellinum hressari og jákvæðari en þegar ég kem þangað. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Ég byrjaði seint að spila, ég var mið aldra byrjandi en þetta er enn að þokast í rétta átt og það eru forréttindi á mínum aldri að hafa heilsu til að spila flesta daga á meðan vellirnir eru opnir og finna alltaf gleðina í leiknum þó misjafnlega gangi. Ég hef nokkrum sinnum lagt próf fyrir sjálfa mig til að „testa“ úthald og einbeitni. Þessi próf hafa falist í að spila jafnmargar holur á einum sólarhring eins og árin mín telja. Þetta byrjaði þegar ég varð sextug þá datt mér í hug að spila þrjá 18 holu hringi á sólarhring. Það gekk ágætlega og þegar ég sagði bróður mínum GR- ingnum frá því svaraði hann „aum ingjalegt, þú áttir auðvitað að spila 60 brautir“. Ég var sammála honum og árið eftir spilaði ég 61 holu og á þessum árum sem síðan eru liðin hef ég gert þetta flest árin og alltaf í júní um það leyti sem ég á afmæli. Þegar leið að sjötugs afmælinu mínu á s.l. sumri fékk ég efasemdir um að ég gæti spilað 70 holur en allt mitt fólk hvatti mig til að reyna og þetta gekk ótrúlega vel. Eini undirbúningurinn var að fylgjst með veðurspánni og finna 24 tíma sem ekki væri von á rigningu og hringja í starfsfólk á skrifstofunni og tilkynna rástíma fyrir mig og son minn kl. 02:30 um nóttina en hinir hringirnir þrír féllu innan venjulegrar rástímabókunar. Það var dásamleg tilfinning, þegar ég var að klára holu nr. 70 á 16. braut og tvö barna minna komu inn á völlinn með hlátrasköllumog hamingjuóskum. Það sem hefur komið mér á óvart er að skorið er mjög svipað á þessum fjórum 18 holu hringjum svo ég álykta að ég sé í góðum málum. Ég get ekki hælt mér af stórum sigrum. Mínir sigrar í golfinu eru smáu skrefin í rétta átt. Hefurðu farið holu í höggi? Já einu sinni á 6. braut á Korpunni. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Eitt haust var ég í Suður-Portúgal og þar var mesta rigningahaust í áratugi en samt pantaði ég rástíma á velli sem ég þekkti ekkert og mætti. Það var bannað að slá inn á flatirnar því efsta lagið á flötunum flaut laust frá undir laginu vegna langvarandi rigninga. Það voru mjög fáir á vellinum og við vorum tvö í holli ég og aldraður enskur herra maður. Hann spurði mig hvaðan ég væri og ég sagði honum það og þá spurði hann mig hvort það væri satt að allir Íslendingar hefðu áhuga á ætt fræði og allir gætu farið inn í gagna grunn á netinu sem héti „Book of Icelanders“, Íslendingabók. Ég jánkaði þessu og spurði af hverju hann hefði áhuga á þessu og hann sagðist vera í klúbbi sem ég man ekki lengur hvað hét og honum hefði verið falið að ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Þórunn Guðmundsdóttir: C M Y CM MY CY CMY K
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==