Kylfingur 2020

I KYLFINGUR I 39 Mercedes-Benz bikarinn – holukeppni GR var haldin í fyrsta sinn sumarið 2017 og hefur Askja verið aðal styrktaraðili keppninnar frá upphafi. Keppnin er ætluð karl- og kvenkylfingum klúbbsins, 19 ára og eldri. Keppnisformið holukeppni er jafnframt hið upphaflega keppnisform í golfi. Kepp­ endur voru 128 og leikið var með útsláttar fyrir­ komulagi. Notast var við hið nýja mótakerfi Golfbox til þess að halda utan um keppnina í ár. Keppendur skráðu sig til leiks í gegnum móta­ kerfið og þar voru öll úrslit skráð og hægt að fylgjast með framgangi keppninnar. Keppnin hófst 1. júní og byrjaði ný umferð að jafn­ aði tveimur vikum síðar. Dregið var um það í kerfinu hverjir myndu mætast í fyrstu umferð. Holukeppnin hefur notið vinsælda og fylltist fljótt í plássin 128 sem í boði voru. Þetta er keppni þar sem kylfingar á ólíku getu­ stigi geta keppt á jafn­ ingjagrundvelli. Leikið var með fullri forgjöf upp að 28 sem var hæsta leikforgjöf sem veitt var í þessu móti. Framkvæmdin á mótinu var þannig að eftir að kepp­ endum hafði verið raðað í fyrstu umferð keppninnar gátu kylfingar farið að mæla sér mót og finna sér leikdag innan þess tímaramma sem gefin var fyrir hverja umferð. Keppendur sáu sjálfir um að velja sér völl og bóka rástíma. Keppendur gátu valið sér teiga við hæfi í þessari keppni og fengu forgjöf samkvæmt þeim teigum sem leikið er af eins og forgjafartöflur sögðu til um. Forgjafarmismunurinn á keppendum dreifðist svo á holur vallarins samkvæmt erfið­ leikaröð eins og hún kemur fram á skorkorti. Heildarfjöldi leikja var 127 og úrlitaleikurinn var sjöunda umferð keppninnar og keppendur sem léku til úrslita því búnir að sigra í sex leikjum í röð. Þetta er því löng leið í úr­ slitaleikinn. Úrslitaleikurinn sem fór fram 3. september var spennandi og um hörku viðureign að ræða þar sem keppendur léku í raun báðir betur en forgjöfin segir til um. Sú hefur verið raunin í þessari keppni að kylfingar eru vel einbeittir og leika að jafnaði mjög vel í úrslitaleikjunum. Það voru þeir Böðvar Bergsson og Júlíus Helgi Júlíusson sem áttust við í ár. Báðir léku þeir afbragðsgolf og fóru leikar þannig að Júlíus Helgi hafði betur og er holukeppnismeistari GR 2020. Mercedes-Benz bikarinn – holukeppni GR Júlíus Helgi sigurvegari F.v.: Böðvar Bergsson og Júlíus Helgi Júlíusson við verðlaunaafhendingu. Júlíus hafði sigur í mjög svo spennandi úrslitaleik sem fór fram í byrjun september.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==