Kylfingur 2020
I KYLFINGUR I 49 Hvenær varðstu félagi í GR? 2012. Af hverju varð golf fyrir valinu? Tveir starfsmenn mínir sem eru góðir golfarar voru ófáanlegir til að vinna á laugardögum, og ég átti ekki orð yfir því að þeir væru að sleppa aukavinnu fyrir golf. Þeir tóku því af skarið og söfnuðu meðal starfsmanna og gáfu mér golfsett í 40 ára afmælisgjöf, sennilega til að losna við tuðið í mér. Settið var af gerðinni Dunlop og var ég mjög stoltur af því. Ég byrjaði rólega fyrstu árin, þá á Bakkakotsvelli. Síðar fór ég í kennslutíma hjá Sigga Hafsteins með settið sem hann kallaði bensín sjoppusettið og mér sárnaði nokkuð enda stoltur yfir Dunlopsettinu. Það hefur ýmislegt breyst síðan þá, engin helgidagavinna og sem mest golf. Hver er forgjöfin í dag? Hún er 10,6. Hefurðu farið holu í höggi? Nei, ekki ég sjálfur, en hef verið vitni að því þrisvar sinnum með félögum sem hafa slegið draumahöggið. Korpan eða Grafarholtið? Grafarholtið, þar er oftast meira skjól, ég er einnig mjög hrifinn að Korpunni. Hver er besti golfvöllur sem þú hefur spilað? Róman Road völlurinn á Celtic Manor. Svo eru margir góðir á Gran Canaria. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Ég einsetti mér það markmið, verandi að byrja í golfi á fimmtugsaldri, að ná einstafstölu í forgjöf sem ég svo náði í júní í sumar og hef verið að rokka undir og yfir 10 þetta árið. Eftirminnilegasti sigurinn er að hafa komist í landliðið 55+ með forgjöf, við spiluðum á Celtic Manor í Wales árið 2019. Svo var það mikill áfangi að sigra í Benz-bikarnum í fyrra eftir dramatísk an sigur sem lauk á 18. holu. Einnig hef ég unnið nokkuð mörg mót síðastliðin 15 ár. Nýjasti sigurinn, frá því í sumar, var 1. sætið á Famouse Grouse mótinu á Korpunni 6. júní, sem var betri bolti, og við Rúnar vinur minn vorum báðir á 74 höggum, 51 punkti. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Guðmundur Ágúst. Ég og Steini, félagi minn, skráðum okkur í mót á Korpunni snemmsumars og lentum í ráshóp með honum. Hann átti teiginn, svo að segja, frá fyrstu holu og er við komum á 5. teiginn gerði hann sig ekki líklegan að slá svo ég spurði í mínum barnaskap eftir hverju hann væri að bíða. Ég er að bíða eftir flötinni, sláið þið bara á und an. Já sæll, okkur félögunum finnst bara gott ef við náum yfir lækinn, þetta verður eitthvað. Og viti menn Guð mundur smellhitti, eins og hann hafði raunar gert fram að þessu, boltinn small á flötinni og flaug 30 metrum lengra svo hann varð að slá til baka upp á flötina. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Maður hefur tekið upp á ýmsu í golf inu. Eitt sinn sló ég af teig á 12. braut á Korpunni (áin), þetta var fyrir nokkrum árum og þá voru trédrumbar sem af mörkuðu rauðu og gulu teigana. Ég slæ af gula teignumog skallaði boltann, hann fer eftir jörðinni og smellur í rauða trédrumbnum og kom í fallegum sveig til baka yfir hausinn á mér og hafnaði langt fyrir aftan gula teiginn. Þar lá boltinn ósláanlegur svo ég dæmdi hann týndan og sló þriðja högg af teig. Eitt haustið vorum við félagarnir að keppa í Leirunni á móti í okt/nóv þegar við komum að 16. teig þá fer að kaf snjóa og vinur minn segir að hann vilji hætta strax, ég reyni að telja í hann kjark og segi það eru bara 3 brautir eftir, hann horfir illilega á mig og hreytir út úr sér að þetta golf sé orðin þráhyggja hjá mér. Eftir þetta gengur hópurinn undir nafninu Klaka-gengið. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Byrja að lagfæra Grafarholtið. Hætta að tala um hlutina og fara að fram kvæma, ég sé fyrir mér að gera svipað og Keilismenn í Hafnarfirði, hafa völl inn opinn meðan á framkvæmdum stendur með tilfæringum, byrja á að þurrka upp 15. og 16. braut, síðan lag færa teiga og grín. Ekki breyta vellinum mikið, hann er perla eins og hann er. Einnig vantar upphitaða inniaðstöðu fyrir vetraræfingar, golfherma, pútt og vipp. Eitthvað að lokum? Golf er besta geðlyfið sem til er, hressir, bætir, kætir. ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Sigurður Óli Sumarliðason:
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==