Kylfingur 2020
58 I KYLFINGUR I Hvenær varðstu félagi í GR? Sumarið 2019. Af hverju varð golf fyrir valinu? Svo ég hefði eitthvað um að tala við manninn minn. Hver er forgjöfin í dag? Hún er upp of ofan. Aðallega upp. For gjöfin stendur núna í 34,9. Hefurðu farið holu í höggi? Nei og aldrei orðið vitni að slíku afreki. Fær mann til að hugsa hvort „Hola í höggi“ sé bara þjóðsaga. Korpan eða Grafarholtið? Korpan. Samt nauðsynlegt að fara í Holtið svona sirka 4. hvert skipti og oft ar þegar ég er með mikilmennsku brjálæði. Svo góð tilfinning fyrir golfara eins og mig að standa á 1. teig í Grafar holti og hafa fulla trú á því að þetta upphafshögg fari vel. Ef hins vegar er lægðartímabil og sjálfstraustið brotið eftir einn eða tvo (þrjá,fjóra,fimm) slæma hringi í röð, þá þarf auka ör yggispissuferð fyrir teigtíma. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Það sannaðist enn og aftur þegar ég hóf að stunda golf að mér var ekki út hlutað neinu íþróttageni við fæðingu. Það er ekkert sem heitir náttúruleg sveifla hjá mér og skandinavískar mjaðmir há mér þó nokkuð í sportinu. Getan sveiflast til og frá. En golfið er alltaf skemmtilegt, bara misskemmti legt. Fyrsti fuglinn, og ennþá sá eini, datt í hús í sumar. Svo var ekkert leiðin legt að lenda í 4. sæti ámeistaramótinu. Var nú samt ekki í meistaraflokknum. Hver er besti golfvöllur sem þú hefur spilað? Það fer eftir því hvaða merkingu ,,besta golfvöllinn’’ hefur fyrir mann. Sá besti er í mínum huga alltaf sá sem ég er að ganga út af eftir 18 holur án stórra skandala, í góðu veðri, í yndis legum félagsskap og það bíður mín kalt hvítvín í skálanum. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Hef ekki enn verið svo heppin að eiga teigtíma með frægum golfara. Eftir þetta viðtal er ég sennilega sjálf sú frægasta sem ég hef spilað með. En ég ætla að segja að sá besti sem ég hef spilað með sé Haukur Gíslason í Elít unni. Hann er ekki bara frábær golfari, heldur líka góður kennari og afar léttur og skemmtilegur. Svo gefur hann manni að reykja ef maður stendur sig vel. En svo ef ég hugsa þetta aðeins lengra þá skildu snillingarnir í mínum eigin golfhóp, Forynjunum, Elítuna eftir í reykjarmekki í liðakeppninni í sumar og enduðu að lokum í öðru sæti. Svo þegar upp er staðið þá er ég að spila með þeim bestu a.m.k einu sinni í viku allt sumarið. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Skemmtilegustu atvikin eru yfirleitt einhver gríðarleg mistök svo sumt vill maður bara ekki muna. Ég verð þó að segja að vallarstarfsmönnum stafar nokkur hætta af mér því mér hefur tekist að slá boltum að vinnandi fólk á golfvöllum á Íslandi, Spáni og Tyrklandi. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Það má auðvitað alltaf eitthvað betur fara. Eins og til dæmis golfhæfileikar mínir. En jú, ég er ekki alltaf sátt þegar erfitt er að finna nógu stóran blett á teignum þar sem ég, boltinn og kylfan erum öll í sömu hæð yfir sjávarmáli. Ójafnir teigar stuða mig. Það stendur þó allt til bóta, er það ekki? Eitthvað að lokum? Covid hefur haft allskonar áhrif á golfið okkar þetta árið og við vitum ekki hvað verður sumarið 2021. Vonandi verður allt komið í nokkurn veginn eðlilegt horf þegar golfsumarið hefst. En ef ekki, og ruslafötur enn fjarstaddar, þá langar mig að biðja alla GR-inga að muna að bjór- og gosdósir, samlokur og annað sem er í golfpokunum á 1. teig, rúmast jafn vel í pokanum á 18. holu. Tökum draslið með okkur alla leið í hús. Líka tóbaksbaggana. ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Jóna Á. Gísladóttir: „ Það sannaðist enn og aftur þegar ég hóf að stunda golf aðmérvar ekki úthlutað neinu íþróttageni við fæðingu. Það er ekkert semheitir náttúruleg sveifla hjámér og skandinavískarmjaðmir hámér þó nokkuð í sportinu. “
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==