Kylfingur 2020

I KYLFINGUR I 63 Hvenær varðstu félagi í GR? Líklega fyrir um það bil 30 árum síðan. Af hverju varð golf fyrir valinu? Ég átti aldrei séns, foreldrar mínir voru bæði keppnisfólk í golfi í denn þannig að ég meira og minna ólst upp á golfvellinum. Sat klofvega á pokanum hjá pabba áður en ég lærði almenni­ lega að labba. Svo tók maður smá golfpásu í kringum töffaraárin (17 til 25) en eftir það hafa sumrin meira og minna verið undirlögð af golfi. Hver er forgjöfin í dag? 4,5. Hefurðu farið holu í höggi? Neibb, ekki enn. Krækt tvisvar en það telur víst ekki. Hef þrisvar sinnum verið í holli þar sem farin var hola í höggi. Þar áttu drauma höggið; Sig­ urður Lúðvíksson, Börkur Þorgeirsson og Ólafur Jóhannesson. Korpan eða Grafarholtið? Korpan fyrri hluta sumars, Grafarholtið seinnipart sumars. Grafarholtið í góðu standi er besti og fallegasti völlur á Íslandi…. Punktur. Hver er besti golfvöllur sem þú hefur spilað? Valderrama . Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Ég er svo heppinn að vera í frábærri grúppu í GR sem heitir Elítan (mjög hógvært nafn). Þar spilum við alltaf einu sinni í viku. Það er stanslaus keppni allt sumarið og mikil uppskeru­ hátíð á haustin. (www.golfelitan.is) . Þannig að maður er nánast alltaf að keppa, með einum eða öðrum hætti. Það gekk bara svona ágætlega í sumar í Elítunni. Ég er alltaf ánægður ef ég lendi í topp 5 eftir sumarið enda 20 gríðarlega öflugir kylfingar í hópnum. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Í meistaramóti fyrir nokkrum árum síð­ an þá spilaði ég ágætis hring í Grafar­ holti uppá 76. Daginn eftir, á sama velli, fékk ég svakalegt tilfelli af shank- vírus og hitti nánast ekki högg allan hringinn. Spilaði á 96 höggum þann daginn (20 högga munur milli daga). Því miður þá var ég í holli með Ragga Sót. Hann bar sig vel á meðan á hringn­ um stóð og var hæfilega hvetjandi á sama tíma og hann færði sig rólega aftar og aftar í hvert skipti sem ég stillti mér upp til að slá, enda líkur á að boltinn færi hvert sem er (jafnvel aftur á bak). Ragga þykir ekki leiðinlegt að segja sögur enda er hann búinn að segja þessa sögu oft og með tölu­ verðum ýkjum t.d. „við stóðum fyrir aftan hann og vorum samt í hættu“. Raggi, þú ert snillingur. Sá besti sem þú hefur spilað með? Varð þess heiðurs aðnjótandi að spila 18 holur í Grafarholti með Birgi Leif Hafþórssyni. Hann er sá allra besti sem ég hef spilað með. Ég hvatti Birgi til að hugsa upphátt þegar hann var að spila, þ.e. hvaða hugsanir fara í gegn­ um kollinn á afrekskylfingi áður en hann slær. Verandi þessi öðlingur sem Birgir er þá gerði hann það og þvílík gullkorn sem hollið pikkaði upp. Þessar 18 holur urðu einhver besta kennslustund í golfi sem ég hef fengið. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Golfklúbbur Reykjavíkur mætti vera duglegri í að halda óformleg mót þar sem grín og gleði vegur hærra en skor og punktar. Eitthvað að lokum? Megi vora snemma á næsta ári. ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Haukur Gíslason: Elítan

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==