Kylfingur 2020
66 I KYLFINGUR I Hvenær varðstu félagi í GR? Ég gekk í félagið 2016. Af hverju varð golf fyrir valinu? Eftir að við hjónin vorum orðin 2 í kotinu vorum við að leita af einhverju sem við gætum gert saman og ekki skemmir ef utanlandsferðir eru í mynd inni. Í okkar vina hóp eru margir golf arar og hjálpaði það við að finna sportið. Fengum tíma hjá golfkennara og eftir það var ekki aftur snúið. Hver er forgjöfin í dag? Er með 28. Var kominn niður í 24 en slasaðist lítillega sem hafði þau áhrif á leik minn að ég hækkaði um heila fjóra. Er allur að koma til og stefni ótrauður á lækkun. Hefurðu farið holu í höggi? Nei, en þrisvar sinnum verið nokkra sentimetra frá því. Korpan eða Grafarholtið? Grafarholtið finnst mér frábær völlur og við félagarnir notum hann til að keppa innbyrðis. Korpuna spila ég mun meira og finnst Landið/Áin skemmti legri en Sjórinn, þar sem að ég hef allt af átt í erfiðleikum með hann. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Tvisvar tekið þátt i Meistaranóti GR í sitt hvorum flokknum og náð öðru sæti í báðum. Fór til golfkennara í sumar og lærði heilmikið af honum og eins áður sagði er ekkert til fyrirstöðu að lækka forgjöfina. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Í Florida lenti ég í holli með Arnari Snæ Hákonarsyni og Hinriki Þráinssyni. Það eru lægstu forgjafarmenn sem ég og John Yoeman, vinur minn, höfum spil að með og frábært að leika með þeim, flottir strákar. Ég hef verið það heppin að næstum allir sem ég hef spilað með er frábært fólk. Ég hef spilað í Bandaríkjunum, Skot landi, Danmörku, Tenerife og Spáni. Spilað með fólki frá öllum þessum löndum, tekið þátt í klúbbamótummeð innfæddum og kynnst frábæru fólki. Hver er besti golfvöllur sem þú hefur spilað? Las Colinas Golf&Country Club á Spáni er flottasti völlur sem ég hef spilað, vel við haldið og krefjandi. Ventura Country Club í Florida er sá völlur sem mér finnst alltaf gaman að leika og eru Ameríkanarnir skemmti legir meðspilarar. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Fór í golfferð til Spánar og gisti á Ali cante Golf hótelinu. Átti fínan hring og sló inn á flöt á 18. holunni, boltinn lendir stutt frá holu og var ég nokkuð ánægður með höggið þar sem að grínið er við hótelgarðinn og þar er alltaf fólk að fylgjast með, ég og með spilarinn erum að tala um þetta fallega högg sem ég átti, en viti menn er við komum að flötinni er boltann minn hvergi að sjá og byrjum við að leita, tökum síðan eftir því að fólkið við barinn er grenjandi úr hlátri, láta okkur síðan vita að máfur hefði tekið boltann og flogið burt með hann. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Breyta Korpunni í þrjá 9 holu velli þegar eftirspurnin er mikil eftir rás tíma. Mætti breyta félagsgjöldum þannig að félagsmenn 71 ára og eldri, sem greiða lægri árgjöld, missi einn dag úr skráningarkerfinu til að auðvelda full greiðandi félagsmönnum að komast á vellina um helgar. Taka upp eingreiðslu, til dæmis 5 þúsund krónur á hvorn völl fyrir sig, sem rynni til veitingasalans fyrir hverja vertíð. Þar með ætti hver greiðandi inneign sem því nemur. Að lengja tímann sem er til að afskrá sig, til dæmis 6 tíma, annars komi til fésektar. Eitthvað að lokum? Ég vil þakka stjórn félagsins fyrir frá bært starf á þeim tíma er ég hef verið félagsmaður og óska þeim velfarnaðar á komandi árum. Takk fyrir mig. ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Þorsteinn Jónsson:
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==