Kylfingur 2020
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir hlýtur Háttvísibikarinn 2019 Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir hlýtur viðurkenninguna í ár. Jóhanna Lea er mikil og sterk fyrirmynd fyrir aðra iðkendur, hún er mjög dugleg við æfingar og hefur sýnt jafnar og góðar framfarir undanfarin ár. Nú á árinu varð Jóhanna Íslandsmeistari í holukeppni og Íslandsmeistari í höggleik í stúlknaflokki 17 – 18 ára ásamt því að tryggja sér Stigameistaratitil í stúlknaflokki 17-18 ára á Íslandsbanka mótaröðinni í lok keppnistímabilsins 2019, hún var einnig hluti af stúlkna landsliði Íslands sem keppti á Evrópumóti stúlkna á Spáni í júlí. Jóhanna Lea er alltaf til fyrirmyndar, innan vallar sem utan og er frábær fulltrúi Golfklúbbs Reykjavíkur. Golfklúbbur Reykjavíkur óskar Jóhönnu til hamingju með Háttvísi bikarinn 2018. 2004 Þórður Rafn Gissurarson 2005 Hanna Lilja Sigurðardóttir 2006 Guðni Fannar Carrico 2007 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2008 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2009 Andri Þór Björnsson 2010 Guðmundur Ágúst Kristjánsson 2011 Sunna Víðisdóttir 2012 Ragnhildur Kristinsdóttir 2013 Saga Traustadóttir 2014 Ingvar Andri Magnússon 2015 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir 2016 Dagbjartur Sigurbrandsson 2017 Böðvar Bragi Pálsson 2018 Elvar Már Kristinsson 2019 Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir Þetta er í 16. skipti sem bikarinn er afhentur og þeir sem hafa áður fengið útnefninguna eru eftirfarandi kylfingar: I KYLFINGUR I 71
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==