Kylfingur 2020
I KYLFINGUR I 77 Tómas Eiríksson Hjaltested hlýtur Háttvísibikarinn 2020 Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig. Tómas Eiríksson Hjaltested hlýtur viðurkenninguna í ár. Tómas er mikil og sterk fyrirmynd fyrir aðra iðkendur, er mjög duglegur við æfingar og hefur sýnt jafnar og góðar framfarir undan farin árin. Spilamennska Tómasar var mjög góð árið 2020. Tómas stóð sig með prýði á Hacienda Del Alamo Open atvinnumannamótinu á Spáni í febrúar síðastliðinn þar sem hann endaði í 9. sæti á fjórum höggum undir pari. Á íslenskri grundu náði hann góðum árangri. Hann endaði í 7. sæti á Íslandsmótinu í höggleik og hampaði stigameistaratitli 17-18 ára eftir góða frammistöðu á unglinga mótaröðinni allt sumarið sem innihélt meðal annars sigur á Nettó mótinu og 3. sæti á Íslandsmótinu í holukeppni. Tómas er alltaf til fyrirmyndar, bæði innan vallar sem utan og er glæsilegur fulltrúi Golfklúbbs Reykjavíkur. Golfklúbbur Reykjavíkur óskar Tómasi til hamingju með Háttvísi bikarinn 2020 2004 Þórður Rafn Gissurarson 2005 Hanna Lilja Sigurðardóttir 2006 Guðni Fannar Carrico 2007 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2008 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2009 Andri Þór Björnsson 2010 Guðmundur Á. Kristjánsson 2011 Sunna Víðisdóttir 2012 Ragnhildur Kristinsdóttir 2013 Saga Traustadóttir 2014 Ingvar Andri Magnússon 2015 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir 2016 Dagbjartur Sigurbrandsson 2017 Böðvar Bragi Pálsson 2018 Elvar Már Kristinsson 2019 Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir Þetta er í 17. skipti sem bikarinn er afhentur og þeir sem hafa áður fengið útnefninguna eru eftirfarandi kylfingar:
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==