KYLFINGUR 2021

I KYLFINGUR I 13 SIGURÐUR PÉTURSSON F. 29. JÚNÍ 1960 – D. 19. APRÍL 2021 Sigurður Pétursson, PGA golfkennari, afrekskylfingur og GR-ingur, lést mánudaginn 19. apríl, aðeins sextugur að aldri. Sigurður var staddur á eyjunni La Gomera þegar hann lést, en hann hafði starfað sem fararstjóri og golfkennari undanfarin ár. Sigurður var félagsmönnum GR og öðrum kylfingum vel kunnur, en hann varð klúbbmeistari GR tvisvar sinnum, árin 1981 og 1983. Hann varð einnig þrefaldur Íslandsmeistari í golfi árin 1982, 1984 og 1985, Íslandsmeistari í holukeppni 1981, 1985 og 1989, ásamt því að vera valinn íþróttamaður Reykjavíkur árið 1985. Hann varð fyrsti Íslendingur sem ráðinn var sem aðalkennari hjá GR 1991. Hann lauk golfkennara- námi hjá sænska PGA 1994. Sigurður eða Siggi Pé eins og hann var ávallt kallaður, varð fyrstur íslenskra kylfinga til að komast í lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröðina. Golfsveitir GR undir liðsstjórn Sigga áttu góðu gengi að fagna og urðu Íslandsmeistaratitlarnir nokkrir. Hann var jafnframt þjálfari íslenska landsliðsins þegar það varð Norðurlandameistari í Grafarholti 1992. Á síðustu árum keppti Siggi með öldungaliði klúbbsins, landsliði lögreglumanna ásamt því að sinna liðsstjórn sveita í Íslandsmóti golfklúbba. Sigurður hóf störf sem lögreglumaður 1986, útskrifaðist úr Lögregluskólanum 1988 og starfaði sem lög­ reglumaður til dánardags, með hléi árin 1991 til 1997 er hann starfaði sem golfkennari hjá GR. Ásamt golfiðkun og áhuga á golfíþróttinni var hann einnig mikill hesta- og fótboltaáhugamaður. Fallinn er frá einstakur maður sem öllum líkaði vel við. Sigga Pé verður sárt saknað utan sem innan vallar en minningin um góðan dreng lifir. Eiginkona Sigurðar er Guðrún Ólafsdóttir og kynntust þau á Grafarholtsvelli 1978. Sigurður lætur eftir sig fimm börn, þau Pétur Óskar, Hannes Frey, Hönnu Lilju, Ragnar og Önnu Margréti. Guðrún átti fyrir Ólaf, sem búsettur er í Svíþjóð. Golfklúbbur Reykjavíkur sendir fjölskyldu og aðstandendum innilegar samúðarkveðjur.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==