KYLFINGUR 2021

I KYLFINGUR I 25 Stefán Már á besta skori, 67 höggum Opnunarmót Korpu fór fram 8. maí og tók völlurinn vel á móti kylfingum í blíðu en frekar svölu veðri. Gleði mátti sjá í andlitum kylfinga enda opnaði völlurinn okkar formlega í dag og lofar hann góðu fyrir komandi tímabil. Ræst var út frá kl. 9-16 í mótinu í dag og var fullt í mótið. Stefán Már Stefánson lauk hringnum í dag á 67 höggum eða 5 höggum undir pari. Úrslit í Opnunarmóti Korpu 2021: Forgjöf 0-14 1. Ragnar Þór Hannesson 44 punktar 2. Reynir Már Sveinsson 42 p. 3. Perla Sól Sigurbrandsdóttir 40 p. Forgjöf 14,1 og hærra 1. Kristófer Páll Lentz 42 punktar 2. Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir 41 p. (fleiri punktar á seinni 9) 3. Matthías Matthíasson 41 p. Nándarverðlaun 3. braut: Sveinbjörn Jóhannesson 128 cm 6. braut: Erna Björk Häsler 86 cm 9. braut: Þuríður Valdimarsdóttir 30 cm 13. braut: Andri Steinn 117 cm 17. braut: Bogi Nils Bogason 101 cm Opnun Korpu 2021

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==