KYLFINGUR 2021

28 I KYLFINGUR I Golf er vinsælasta almenningsíþrótt á Íslandi og nýliðun er þó nokkur í þessu stórskemmtilega útivistarsporti. Golf hefur fjölmarga kosti, svo sem hóflega hreyfingu, útiveru, samveru með öðru fólki og keppni. Það sem er svo sér­ stakt við golfið er að keppendur af ólíku getustigi geta keppt sín á milli. Þar kemur forgjafarkerfið til. Um leið og fólk getur leikið á sinni forgjöf er það jafnframt orðið fært um að keppa við hverja sem er. En það eru ekki allir með það á hreinu hvernig forgjafarkerfið virkar eða hvers vegna og hvernig höggin eru reiknuð í punkta og hvernig forgjöfin nýtist í keppni. Skorkortið Áður en farið verður yfir forgjafarkerfið er byrjað á því að útskýra tölurnar á skorkortinu. Hér er dæmi um skorkort. Í þessu tilviki er um að ræða 18 holu völlinn Sjórinn/Áin á Korpúlfsstöðum. Fyrsti dálkurinn sýnir númer¬aðar brautirnar frá 1 – 18. Næstu fjórir dálkar sýna lengd brauta í metrum frá mismunandi teigum. Völlurinn er lengstur þegar leikið er af hvítum teigum og svo styttist völlurinn á hverju teigasetti. Í þessari útgáfu af skorkorti eru hvítir, gulir, bláir og rauðir. Til eru gullteigar en þeir eru lítið notaðir. Þeir eru ekki sýndir á þessu skorkorti. Grænu dálkarnir sýna par hverrar holu. Þær geta verið par 3, par 4 eða par 5. Par holu er sá höggafjöldi sem kylfingur með 0 í forgjöf getur að jafnaði leikið holur á. Dálkurinn við hliðina á par dálkinum sýnir forgjafarröð á holum, þannig að allar holurnar eru númeraðar frá 1-18. Yfirleitt eru oddatölurnar á öðrum 9 holu hluta vallarins og sléttu tölurnar hinummegin. Í þessu tilviki eru oddatölurnar á Ánni en sléttu tölurnar á Sjónum (fyrri níu holunum). Forgjafarröðin er notuð til þess að deila út leikforgjöf kylfinga á holur vallarins. Forgjöfin Forgjafarkerfið sem notað er á Íslandi er alþjóðlegt og hefur verið samræmt á heimsvísu. Það var gert fyrir tveimur árum síðan. Hámarksforgjöf er 54. Forgjöfin byggir á getu kylfings og því eru kylfingar hvattir til þess að skrá sem flesta hringi til forgjafar. Þegar kylfingar hafa náð því að leika 20 for­ gjafarhringi eða fleiri þá er það meðaltalið af 8 bestu hringjunum sem mynda forgjöfina. Þegar kylfingar fá forgjöf er hún gefin upp í heiltölu með einum aukastaf og kallast sú forgjöf grunnforgjöf. Golfvellir eru misjafnlega erfiðir og einnig er golfvöllur misjafnlega erfiður eftir því hvaða teigar eru leiknir. Forgjafartafla golfvallar sýnir hvaða vallarforgjöf kylfingar fá. Vallarforgjöf er gefin í heilli tölu. Í hvert sinn sem kylfingur leikur golfhring getur hann leikið til forgjafar. Kylfingar skrá skor sitt í Golfbox kerfið, meðspilari staðfestir skorið og forgjöfin reiknast upp sjálfkrafa. Það er hins vegar gagnlegt fyrir kylfinga að vita hvernig skorið reiknast. Stableford punktar Forgjafarkerfið umreiknar skorið yfir í punkta. Grunn­ hugmyndin er sú að ef kylfingur leikur golfhring á sinni for­ gjöf þá fái hann 36 punkta eða að meðaltali 2 punkta á holu. Forgjafarhöggunum er dreift á holur vallarins. Þannig fær kylfingur með 54 í forgjöf 3 forgjafarhögg á hverja holu (3 x 18 = 54). Kylfingur með 36 í forgjöf fær 2 högg á hverja holu og kylfingur með 18 í forgjöf fær 1 högg á hverja holu. Hér er tekið dæmi þar sem Gunni og Gunna ætla að leika golfhring og skila honum inn til forgjafarútreiknings. Bæði eru með 38,1 í forgjöf. Gunna leikur alltaf á rauðum teigum. Samkvæmt forgjafartöflu fær Gunna 40 forgjafar­ högg. Gunni leikur venjulega á rauðum teigum þegar þau Gunna fara saman í golf. Hann leikur einu sinni í viku með karlahópi og leikur þá oftast á gulum teigum. Hann leikur líka stundum á bláum teigum. Samkvæmt forgjafartöflu fær hann 40 forgjafarhögg á gulum teigum, 36 á bláum og 32 á rauðum. Hann leikur þennan hring á rauðum teigum. Á skorkortinu er búið skrifa nöfn kylfinga, grunnforgjöf og vallarforgjöf. Auk þess er búið að setja inn tvo dálka til þess Tölurnar á skorkortinu og punktaútreikningur

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==