KYLFINGUR 2021
44 I KYLFINGUR I brandsson) til að hjálpa mér við að ná upp stemningu og sjálfstrausti í púttunum, en hann og pabbi hans voru einu Íslendingarnir á svæðinu, fyrir utan mig og pabba. Eftir að hafa komið mér í góða stöðu á 19. holu upp við grínið í tveimur, meðan Luise var í bönkernum við grínið í tveimur, þá setti hún niður fyrir erni úr bönker og var því komin 6 holur upp. Eftir að 20. holan féll eftir enn eitt þrípúttið af minni hálfu var holunum heldur farið að fækka að mér fannst. Það má eiginleg segja að eftir að hafa tapað 22. holu á tvöföldum skolla tók ég þá meðvituðu ákvörðun að njóta þess bara fyrst og fremst að vera spila í úrslitum á opna breska í stað þess að sökkva mér niður í einhver vonbrigði. Leikurinn kláraðist svo á 28. holu, þar sem ég felldi þá holu á pari og lauk leiknum með sigri Luise 9/8. Í félagsskap Önnu Nordqvist og Charlottu Cigöndu Það er óhætt að segja að það var ekki fyrr en eftir hringinn sem ég áttaði mig til fulls á því að ég var að spila í úrslitum á stórmóti, þar sem mikið var undir. Það breytti þó engu um það að ég var og er virkilega stolt af sjálfri mér fyrir frammistöðuna, þ.e. fyrir að hafa náð svona langt og haldið haus við afar erfiðar aðstæður á köflum, en á sama tíma afar svekkt yfir því að þetta hefði svo auðveldlega getað orðið spennandi leikur. Svona er golfið. Stundum ganga hlutir upp og stundum ekki. Þetta reyndist ekki minn dagur. Þarna fann ég líka hvað það skipti miklu máli að vera í góðu líkamlegu formi þar sem það er ekki auðvelt að spila ellefu æfinga- og mótshringi á átta dögum, auk þess að æfa í einn til tvo og hálfan tíma á hverjum degi. Ég var því bæði þreytt líkamlega og andlega að móti loknu. Ég held að það sé óhætt að segja að við þrjár sem spiluðum þarna fyrir hönd Íslands, á þessu þekkta móti, getum allar borið höfuðið hátt og verið stoltar af okkar frammistöðu. Auk þess sem ég endaði í öðru sæti í holukeppninni, þá spilaði Ragga best allra í höggleiknum fyrstu tvo dagana sem var mikið afrek þar sem mótið var mjög sterkt, auk þess sem Hulda stóð sig mjög vel í höggleiknum. Þetta mót geymir minningu sem seint mun gleymast um leið og það staðfestir líka fyrir mér að allt er hægt ef maður trúir á það sem maður er að gera, er duglegur og stendur með sjálfum sér, auk þess sem smá heppni og örlítið bros skaðar ekki til að fljóta betur yfir erfiðustu hjallana. Það var því afar gaman að fá afhentan merkilegan bikar að móti loknu fyrir árangurinn. Sá bikar hefur verið afhentur fyrir annað sætið allt frá árinu 1924, að mig minnir. Hann geymir mörg þekkt nöfn í kvennagolfinu sem hafa náð ansi langt. Þar er t.a.m. að finna nöfn Charlota Ciganda frá Spáni og Anna Nordqvist frá Svíþjóð frá árunum 2006–2008, en þær tvær voru í Solheim Cup liði Evrópu sem vann Bandarísku sveitina sl. sumar í keppni um þann merka bikar. Mér finnst því ég því vera komin í mjög góðan félagsskap. Stolt feðgin, enda frábær árangur.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==