KYLFINGUR 2021

46 I KYLFINGUR I L íkt og fyrri ár hefur barna- og ungl­ ingastarf Golfklúbbs Reykjavíkur verið starfrækt af miklum krafti. Mikil áhersla var lögð á að auka gæði æfinga með því að auka hlutfall kennara á hvern iðkanda. David Barnwell og Jóhannes Guð­ mundsson sáu um vetrarkennslu en kennt var þrisvar sinnum í viku ef aðstæður leyfðu. Sökum Covid-19 raskaðist starfið talsvert og allt félagsstarf í kringum barna- og ungl­ ingastarfið lá niðri t.d. púttmótaröðin sem haldin er að öllu jöfnu hverja helgi og áætlanir um að hittast fyrir utan golfvöllinn og gera eitthvað saman sem væri ótengt golfíþróttinni. Í byrjun sumars var bætt í þjálfara­ teymi GR og inn í hópinn komu Ragn­ hildur Kristinsdóttir og Berglind Björns­ dóttir. Heilsárs- og hálfsársmeðlimir gátu æft allt að fjórum sinnum á viku auk þess að standa til boða að spila á Icelandair Cargo mótaröðinni og Grafarkotsmótaröð Icelandair Cargo. Jafnframt var boðið upp á aukinn sveigjanleika í æfingum barna- og unglingastarfsins með því að hafa æfingatíma á miðjum degi fyrir iðk­ endur sem gátu ekki mætt á æfingar í sínum aldursflokki vegna árekstra við aðra íþrótta- eða tómstundaiðkun. Sumaraðild GR var endurmótuð en í stað einungis einnar opinnar æfingu á viku sem hafði verið síðustu ár gátu sumarmeðlimir tekið þátt í alls fjórum æfingum; tveimur skipulögðum þar sem einungis sumarmeðlimir æfðu saman og tveimur opnum æfingum Barna- og unglingastarf GR

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==