KYLFINGUR 2021

48 I KYLFINGUR I þar sem heils- og hálfsársmeðlimir æfðu líka. Ennfremur var Golfskóli Golfklúbbs Reykjavíkur starfræktur með öðrum hætti þetta árið en fyrri ár en skólanum var nú skipt í 6-9 ára á Korpúlfsstöðum og 10-14 ára í Grafarholti. Skólinn var vel sóttur en alls mættu 260 krakkar í námskeiðin sem voru í boði frá miðjum janúar til byrjun skólahalds í lok ágúst. Barna- og unglingastarf GR árið 2021 í tölum: Heildarfjöldi árið 2021 í barna- og unglingastarfi GR þ.e. heilsárs-, hálfs­ árs- og sumaraðild var 190. Saman­ borið við árið 2020 er aukning um 63 iðkendur eða 49,6%. Heildarfjöldi árið 2021 í barna- og unglingastarfi GR með Íþróttaskóla GR og Golfskóla GR var 474 en heildarfjöldi árið á undan var 304. Aukning um 170 iðkendur milli ára eða 56%. Þjálfarateymi GR stefnir að því að bæta umgjörð barna- og unglingastarfs GR enn frekar á næsta ári. Eitt af meginmarkmiðunum er aukn­ ing stelpna í barna- og unglingastarfinu en um 30% af iðkendum barna- og unglingastarfs GR eru stelpur.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==