KYLFINGUR 2021

I KYLFINGUR I 5 Kæru félagar, Ég þakka ykkur traust og stuðning sem mér og stjórn var sýndur á aðalfundi félagsins í síðustu viku. Fyrir nokkrum árum var gerð viðamikil skoðanakönnun meðal félagsmanna. Niðurstöður könnunarinnar voru afgerandi um að bygging íþróttahúss (inniæfinga- og félagsaðstöðu) og endurbætur á Grafarholtsvelli skyldu vera forgangi. Þessi pistill verður um Grafarholtið og verður því í lengri kantinum. Í næstu pistlum og fréttabréfum mun ég fjalla um önnur brýnustu málefnin. Grafarholtsvöllurinn var hannaður af Svíanum Nils Skjold. Árið 1963 var byrjað að leika á nokkrum holum og svo voru fleiri og fleiri holur smátt og smátt teknar í notkun. Gerð golfvallar í Grafarholti var meiriháttar átaksverkefni á sínum tíma og magnað að hópur áhugakylfinga hafi ráðist í annað eins, fjarri byggðinni í Reykjavík á þeim tíma. Hönnun og gerð vallarins heppnaðist með ólíkindum vel. Brautirnar eru eins fjölbreyttar og þær verða. Engar tvær brautir liggja í sömu átt, sumar þeirra liggja í mishæðóttu landslagi en aðra á flatlendi. Brautirnar eru lagðar í grýttu en gróðursælu holti sem umlykur þær. Flestar holur eru þannig að kylfingurinn stendur frammi fyrir ákvarðanatöku á teig hversu grófa skotlínu skuli taka og með hvaða kylfu, við síbreytilegar aðstæður. Freistingar til áhættutöku eru um allan völl. Eins og á mörgum eldri völlum eru flatirnar litlar og kalla á nákvæmni í innáhöggum. Þær eru hallandi og erfiðar í lestri, sem gefur heimamönnum sem þekkja þær ákveðið forskot. Þannig eru góðir heimavellir. Karakterinn í vellinum er einstakur og hversu skemmtilegur hann er í spili. Teikning vallarins frá Nils Skjold hefur haldið sér merkilega vel þó völlurinn hafi verið betrumbættur í gegnum tíðina á ýmsan hátt. Félagsmaður sem þekkir vel til sagði mér að einungis ein flöt vallarins í dag, sú þriðja, sé upprunaleg, allar hinar hafi verið endur­ byggðar. Völlurinn hefur því fengið að þróast eins og flestir eldri golfvellir. Helsti veikleiki vallarins í dag eru ósléttar brautir. Gefist hefur verið upp á að spila hreyfingarlaust golf - kylfulengdarhreyfingar leyfðar - sem er ekki í samræmi við aðalreglu golfsins sem er hreyfingarlaust golf. Einnig er mikill áhugi á því að endurbyggja flatir eftir nútíma aðferðum. Endurbætur á dagskrá Fyrir nokkrum árum leitaði stjórn GR til skoska golfvallararkitektsins Tom McKenzie um Kylfingur – 1. tbl. 2021 – Útgefandi: Golfklúbbur Reykjavíkur – Ábm.: Ómar Örn Friðriksson – Ritstjóri: Halldór B. Kristjánsson. Ljósmyndir: Dóra Eyland, Frosti Eiðsson, Grímur Kolbeinsson, GSÍ og margir fleiri. Prófarkalestur: Auðbjörg Erlingsdóttir – Hönnun og umbrot: Halldór B. Kristjánsson / Leturval. Stjórn Björn Víglundsson formaður, Elín Sveinsdóttir varafor­ maður, Gísli Guðni Hall ritari, Brynjar Jóhannesson, Kristín Eysteinsdóttir, Ólafur William Hand og Margeir Vilhjálmsson. Í varastjórn eru: Guðmundur Arason, Stefán Már Stefánsson og Þórey Jónsdóttir gjaldkeri. Framkvæmdastjóri Ómar Örn Friðriksson. Nefndir: Fjárhagsnefnd Björn Víglundsson og Þórey Jónsdóttir. Ungmenna- og afreksnefnd Elín Sveinsdóttir, Guðmundur Arason, Stefán Már Stefánsson. Forgjafar- aga- og laganefnd Ólafur Arinbjörn Sigurðsson og Stefán Pálsson. Mannvirkja- og vallanefnd Björn Víglundsson, Gísli Guðni Hall, Ólafur William Hand og Margeir Vilhjálmsson. Félags- og kappleikjanefnd Ólafur William Hand, Brynjar Jóhannesson og Kristín Eysteinsdóttir. Kjörnefnd Bernhard Bogason, Helga Hilmarsdóttir og Sigurjón Árni Ólafsson. Kvenna- og skemmtinefnd Sigríður Oddný Marinósdóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Inga Nína Matthíasdóttir, Kristín Nielsen, Ljósbrá Baldursdóttir og Kristín Halla Hannesdóttir. Gísli Guðni Hall, formaður GR: Endurbætur Grafarholtsvallar framundan Forsíðumyndin Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir lék til úrslita á Opna breska áhugamannamótinu „The Womens Amateur Championship“, fyrst íslenskra kvenna. Jóhanna hafnaði í öðru sæti og hlaut að launum nafn sitt á bikar og er þar í góðum félgsskap ásamt mörgum frægum kvenkylfingum ss. Charlotte Cigöndu og Önnu Nordqvist. Frábær árangur og ómetanleg reynsla fyrir okkar unga kylfing.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==