KYLFINGUR 2021
50 I KYLFINGUR I Hjóna og parakeppni GR fór fram fimmtudaginn 17. júní á Korpúlfs staðavelli. Mótið var fullsetið og mættu 62 hjón/pör til leiks. Veðrið lék við keppendur þótt það vantaði nokkrar gráður upp á hitastigið. Leikið var með Greensome fyrirkomulagi á Ánni/Landið, pylsur grillaðar við klúbbhúsið og var þjóðhátíðarstemmning yfir vellinum. Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sæti ásamt nándarverðlaunum á öllum par 3 holum vallarins. Guðrún Óskarsdóttir og Agnar Örn Ara son unnu með glæsilegu skori eða 58 höggum nettó. Úrslit mótsins voru eftirfarandi: 1. Guðrún Óskarsdóttir og Agnar Örn Arason 58 högg nettó. 2. Harpa Ægisdóttir og Þórir Viðarsson 63 högg nettó (betri á seinni). 3. Dagrún Mjöll Ágústsdóttir og Arona Hauksson 63 högg nettó. Nándarverðlaun: 13.braut: Guðrún Ýr Birgisdóttir 1,38 m 17.braut: Páll Gunnar Pálsson 1,22 m 22.braut: Þorsteinn Sæberg 2,28 m 25.braut: Alda Harðardóttir 1,64 m Golfklúbbur Reykjavíkur óskar vinningshöfum til hamingju með góðan árangur og þakkar fyrir vel heppnað 17. júní þjóðhátíðarmót. Guðrún Óskarsdóttir og Agnar Örn Arason sigurvegarar í Hjóna og parakeppni GR 2021 Eins og áður hefur verið tilkynnt þá fjölgaði í dómarateymi GR í vor en þá voru 16 nýir dómarar sem luku héraðs dómaraprófi og voru 6 konur í þeim hópi. Meirihluti þessa hóps hefur tekið þátt í dómarastörfum það sem af er sumri og er gaman að segja frá því að í meistaramótsviku tóku 2 konur þátt í dómarastörfum, þær Ingibjörg Þórdís Sigurþórsdóttir og Anna Sverrisdóttir. Dómarahópur klúbbsins er orðinn öflugur og eru nú alls 19 dómarar virkir í störfum fyrir félagið. Kylfingur býður þær Ingibjörgu og Önnu velkomnar til leiks og hlökkum til fá fleiri konur til liðs við okkur hjá GR. Tvær konur meðal dómara á Meistaramóti klúbbsins 2021
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==