KYLFINGUR 2021
64 I KYLFINGUR I Einvígið á Nesinu fór fram á Nesvellinum í frábæru veðri á frídegi verslunarmanna. Þetta var í 25. sinn sem mótið fór fram og eins og ávallt er það haldið til styrktar góðu málefni. Að þessu sinni var það BUGL sem fékk styrkinn en BUGL er deild innan Landspítala Íslands og veitir börnum og unglingum með geð- og þroskaraskanir margvíslega þjón ustu. Alls fengu 11 afrekskylfingar boð um að taka þátt og var keppnisfyrirkomulagið með hefðbundum hætti eða „Shoot Out“. Á fyrstu tveimur holunum féll sá leikmaður úr keppni sem var fjærst holu eftir þrjú og högg. Á 2. holu féll sá leikmaður sem var fjærst holu eftir tvö högg úr keppni. Á 3. braut hófst hið hefðbundna „shoot-out“ fyrir þá sem voru með hæsta skor á viðkomandi braut. Á 9. teig stóðu aðeins tveir kylfingar eftir eins lög gera ráð fyrir og voru það GR-ingarnir Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Ragnhildur Kristinsdóttir. Níunda brautin er frekar stutt par 4 hola og undantekningalaust reyna kylfingar að slá beint inn á flöt. Guðmundur Ágúst sló sitt upphafshögg vel til vinstri og var um 60 metra frá holu en Ragnhildur átti stórkostlegt högg þar sem kúlan lenti rétt framan við flötina og rúllaði framhjá stönginni og endaði 10-15 metra frá holu. Greinilegt var að Guðmundur Ágúst átti undir högg að sækja en í golfi getur allt gerst. Hann fékk lánaðan fjarlægðar kíkinn hjá Ragnhildi og eftir nákvæma mælingu gerði hann sér lítið fyrir og sló sitt högg um tvo metra frá holunni svo þetta var aldeilis ekki búið. Ragnhildur vippaði sínum bolta rúman metra frá holunni og allt stefndi i bráðabana. Guð mundur Ágúst setti púttið í og fékk fugl og þá var pressan komin á Ragnhildi sem brást bogalistin og stóð Guðmundur Ágúst uppi sem sigurvegari í annað sinn á þessu móti. Það var STEFNIR sjóðastýringarfyrirtæki sem var styrktar aðili mótsins þetta árið og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir þeirra frábæru aðkomu að mótinu. Að móti loknu var verðlaunaafhending og keppendum afhentur þakklætisvottur fyrir sitt framlag til málefnisins frá Kristni Ólafssyni formanni Nesklúbbsins. Mótið er eins og áður sagði fyrst og fremst góðgerðarmót og afhenti Magnús Örn Guðmundsson frá STEFNI Guðrúnu Jóhönnu Benediktsdóttir ávísun upp á eina milljón króna. Einvígið á Nesinu: Guðmundur Ágúst og Ragnhildur börðust um sigurinn
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==