KYLFINGUR 2021
66 I KYLFINGUR I Íslandsmót golfklúbba 1. deild 50 ára og eldri var leikið dagana 19.–21. ágúst. Keppni í kvennaflokki fór fram á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis en þar fagnaði sveit GR Íslandsmeistaratitli eftir 4-1 sigur í úrslitaleik gegn GKG. Sveit GK endaði í þriðja sæti eftir 4 1 / 2 – 1 / 2 sigri gegn GO og GA féll í 2. deild, alls tóku 8 klúbbar þátt. Kvennasveit GR var þannig skipuð: Ragnhildur Sigurðardóttir Ásgerður Sverrisdóttir Steinunn Sæmundsdóttir Signý Marta Böðvarsdóttir Auður Elísabet Jóhannsdóttir Guðný María Guðmundsdóttir Þuríður Valdimarsdóttir Guðrún Garðars Liðsstjóri: Ásta Óskarsdóttir Í karlaflokki fór keppnin fram á Hamarsvelli hjá Golfklúbbi Borgarness, þar lék sveit GR úrslitaleik við sveit GK og hafði GK betur 3–2, hafnaði GR því í öðru sæti. Í þriðja sæti varð GÖ eftir 3–2 sigur gegn GS. Það voru einnig 8 klúbbar sem tóku þátt í karlaflokki og féll GO í 2. deild. Karlasveit GR var þannig skipuð: Sigurjón Arnarsson Frans Páll Sigurðsson Guðmundur Arason Jón Karlsson Einar Long Hörður Sigurðsson Hannes Eyvindsson Guðjón G Daníelsson Liðsstjórar: Jón Karlsson og Guðmundur Arason. Íslandsmót golfklúbba 1. deild 50 ára og eldri: Kvennasveit GR Íslandsmeistarar Sigursveit GR. F.v.: Ragnhildur Sigurðardóttir, Signý Marta Böðvarsdóttir, Guðný María Guðmundsdóttir, Ásta Óskarsdóttir, Ásgerður Sverrisdóttir, Þuríður Valdimarsdóttir, Auður Elísabet Jóhannsdóttir og Guðrún Garðars.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==