KYLFINGUR 2021

I KYLFINGUR I 69 Hvenær varðstu félagi í GR? Byrjaði árið 2007 og vá hvað ég hefði átt að byrja fyrr! Af hverju varð golf fyrir valinu? Fyrir utan að það var lítil eftirspurn eftir mér í öðrum íþróttagreinum þá er golf bara svo falleg íþrótt og öll um­ gjörðin. Svo er líka upp til hópa svo skemmtilegt og gott fólk sem spilar golf að maður vill hvergi annarsstaðar vera. Hver er forgjöfin í dag? Hún er 11,8 og þökk sé Gulla í Golfhöllinni sem hjálpaði mér í vetur. Korpan eða Grafarholt? Grafarholt allan daginn ... en Áin við Korpu eru sannarlega fallegar holur líka. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Snýst þetta ekki allt um að sigra sjálfan sig. Það var frábært að spila Old Course á St. Andrews á 84 höggum á afmælisdegi æsku vinar míns Jóns Birgis árið 2019 í frá­ bærum hópi. Svo náði ég loksins að spila undir 80 í sumar og fór Þor­ lákshöfn á 76 en sá völlur er orðinn frábær í dag. Eftirminnileg atvik eða skemmti­ legar sögur? Já ég hlýt að kjafta frá því þegar við týndum húsinu okkar í St. Andrews árið 2016. Við vorum svo spenntir að fara að spila að við gleymdum öllu. Eftir hringinn þegar panta átti leigubílinn mundi enginn heimilisfang hússins sem við höfðum leigt og enginn með tölvupóstsamskiptin á reiðum höndum. Eftir að hafa keyrt allar götur í bænum í 2 tíma fundum við loksins húsið. Við fórum svo aftur til St. Andrews árið 2019 og þegar leigubílstjórinn heyrði að við vorum Ís­ lendingar vildi hann endilega segja okkur brandara af vitleysingjunum sem týndu húsinu nokkrum árum fyrr. Það er mjög sérstök upplifun að vera í ókunnu landi þar sem brandari er sagður og þú ert brandarinn. Hefurðu farið holu í höggi? Nei, og ekki einu sinni nálægt því. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Úff ... ætli KGB eða Kristinn Gústaf Bjarnason sé ekki einn af þeim stöðugri sem ég hef spilað með í gegnum tíðina. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Það er mikill sjarmi yfir völlunum á St. Andrews og skoska landslaginu. Svo eru vellirnir á Doral, Blue Monster frábærir og eins Reunion Flórida með gríðarleg gæði. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Það eru fullt af góðum hlutum í gangi hjá GR en ég sakna framkvæmda­ gleðinnar. Ég hefði viljað sjá endur­ bætur á Holtinu ganga miklu miklu hraðar þó ekki væri nema að laga teiga og byggja fáein grín. Það var gert flott „Masterplan“ af Holtinu fyrir mörgum árum sem ég hefði viljað sjá lengra komið. Ég sé ekki betur en klúbburinn sé fjárhagslega vel stæður og nú þarf að hætta að tala og fara að framkvæma. Ég held líka að GR sé að missa af lestinni að byggja upp inniaðstöðu með Trackman og það er synd þar sem það hefði getað gert gott fyrir félagsandann. Félagsmenn þurfa að hittast meira en bara 5 mánuði yfir sumarið til að upplifa að þeir séu í klúbbi og tilheyri einhverjum hópi. Núverandi rekstraraðilar með veitinga­ staðina eru frábærir og vonandi ber okkur gæfa til að halda þeim og fjár­ festa í breytingum í húsnæðinu í Grafarholtinu og gera það enn flottara. Eitthvað að lokum? Ég vona að næsta stjórn GR hugsi til næstu áratuga þegar kemur að fram­ kvæmdum á Grafarholtinu. Fasteignir sem byggðar verða þar munu standa lengi og þess vegna þarf framsýni. Ég myndi vilja sjá hús sem ýtir undir til­ finninguna að þetta sé klúbbur um leið og það gæti þjónað öðrum hópum eins og útivistarfólki, hjólurum og fólki úr hverfinu. Þeir sem byggðu völlinn í Holtinu á sínum tíma hugsuðu stórt – nú þurfum við fólk í stjórn sem hugsar stórt. ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Jón Jósafat Björnsson:

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==