KYLFINGUR 2021

I KYLFINGUR I 75 Perla Sól Sigurbrandsdóttir hélt uppteknum hætti og sigraði í flokki 15-16 ára stúlkna og Nína Margrét Valtýsdóttir kom sá og sigraði í flokki 17-18 ára stúlkna. Íslandsmót unglinga í holukeppni var næsta mót GSÍ mótaraðarinnar en mótið var haldið á Grafarholtsvelli. Böðvar Bragi Pálsson og Perla Sól Sigurbrandsdóttir urðu Íslandsmeistarar í sínum flokkum auk þess sem GR átti kylfinga á verðlaunapalli í öðrum flokkum. Íslandsmótið í höggleik unglinga var haldið hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Perla Sól kláraði frábært tímabil sitt með sigri en hún stóð upp sem sigurvegari í öllum mótum GSÍ mótaraðarinnar í sínum flokki. Böðvar Bragi Pálsson lék frá­ bært golf og sigraði í flokki 17-18 ára pilta. Ásdís Valtýsdóttir varð hlutskörpust í flokki 19-21 árs stúlkna. Eftir tímabilið varð ljóst að GR átti nokkra kylfinga sem stóðu uppi sem stigameistarar GSÍ sinna flokka en það voru Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Böðvar Bragi Pálsson og Ásdís Valtýsdóttir. Ásdís Valtýsdóttir sigraði í sínum flokki á fyrsta stigamóti ársins. Varð Íslandsmeistari í höggleik og stigameistari GSÍ 2021. Jóhann Frank Halldórsson sigraði sinn flokk, 17-19 ára, á fyrsta stigamóti GSÍ sem haldið var á Hellu. Böðvar Bragi Pálsson sigurvegari á öðru stigamóti GSÍ, varð Íslandsmeistari í holukeppninni og höggleiknum og að sjálfsögðu stigameistari GSÍ. Nína Margrét Valtýsdóttir sigraði í flokki 17-19 ára á þriðja stiga­ móti GSÍ sem haldið var á Akureyri.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==