KYLFINGUR 2021

8 I KYLFINGUR I Íþróttamaður Reykjavíkur 2020 GUÐMUNDUR ÁGÚST KRISTJÁNSSON Íþróttafólk Reykjavíkur 2020 var tilkynnt í lok desember 2020 með öðrum hætti en venjulega vegna aðstæðna í samfélaginu. Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR er íþróttamaður ársins og íþróttakona ársins er Steinunn Björnsdóttir, handknattleiks­ kona úr Fram. Á árinu 2020 var Guðmundur Ágúst með keppnisrétt á næst sterkustu atvinnumóta­ röð Evrópu, Challenge Tour, en aðeins fimm íslenskir kylfingar hafa öðlast keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni. Guðmundur Ágúst endaði í 46. sæti á stigalistanum sem er næst besti árangur hjá íslenskum atvinnukylfingi á Áskor­ endamótaröðinni Challenge Tour. Besti árangur hans var á Norður-Írlandi þar sem hann endaði í 5. sæti. Guðmundur Ágúst hefur farið hratt upp heimslistann á undanförnum misserum. Kylfingur óskar Guðmundi Ágústi innilega til hamingju með titilinn Íþróttamaður Reykjavíkur 2020.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==