KYLFINGUR 2021

I KYLFINGUR I 89 Evrópumót golfklúbba kvenna var haldið á Golf De Fontainebleau golfvellinum í Frakklandi 30. septem­ ber til 2. október síðastliðinn. Golf­ klúbbur Reykjavíkur hlaut þátttökurétt með sigri á Íslandsmóti klúbba kvenna í 1. deild. Hvert lið innihélt þrjá leikmenn og var leikinn höggleikur þar sem tvö bestu skorin töldu í hverri umferð. Lið GR var skipað eftirfarandi kylf­ ingum: Ásdís Valtýsdóttir, Nína Margrét Valtýsdóttir og Eva Karen Björnsdóttir. Berglind Björnsdóttir var liðsstjóri. Lið GR endaði í 14. sæti á alls 47 höggum yfir pari. Golf Club de Toulouse endaði sem sigurvegari á samtals 4 höggum yfir pari, Golf-und Land-Club Berlin Wannsee varð í 2. sæti á 6 höggum yfir pari og Smorum Golfklub endaði í 3. sæti á 7 höggum yfir pari. 1. keppnisdagur Ásdís Valtýsdóttir 79 högg Eva Karen Björnsdóttir 86 högg Nína Margrét Valtýsdóttir 88 högg 2. keppnisdagur Ásdís Valtýsdóttir 78 högg Eva Karen Björnsdóttir 80 högg Nína Margrét Valtýsdóttir 81 högg 3. keppnisdagur Ásdís Valtýsdóttir 77 högg Eva Karen Björnsdóttir 79 högg Nína Margrét Valtýsdóttir 81 högg Sveit GR varð í 14. sæti á EM golfklúbba sem fór fram í Frakklandi Frá vinstri: Berglind Björnsdóttir, Nína Margrét Valtýsdóttir, Ásdís Valtýsdóttir og Eva Karen Björnsdóttir

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==