KYLFINGUR 2021

J. Lindeberg bikarinn – LIÐAKEPPNI GR – Liðakeppni GR hefur fest sig í sessi sem vinsæll vettvangur til þess að komast í sveitakeppnis-stemmingu og leika golf sem hluti af liði. Annað árið í röð hét þessi keppni J. Lindeberg bikarinn , en styrktaraðili keppninnar er NTC sem er umboðsaðili fyrir hinn vinsæla golf­ fatnað frá J. Lindeberg. Það voru 23 lið sem tóku þátt í keppninni í ár. Hvert lið má vera skipað allt að 12 leikmönnum, en það eru 6 leikmenn í hvoru liði sem leika hvern leik. Hver leikur er þannig samsettur að tveir leikmenn leika fjórleik, þar sem betra skor liðsmanns á holu er borið saman við betra skor hins liðsins. Þetta er því holukeppni með betri bolta fyrirkomulagi. Hinir fjórir leik­ menn liðsins leika tvímenningsleiki gegn hinu liðinu, en það er holukeppni, einn á móti einum. Hver leikur er 9 holur og allir leikirnir eru leiknir á Korpu. Liðakeppnin er því ekki tímafrek. Liðunum var skipt í sex riðla og léku liðin öll innbyrðis. Riðlakeppnin var leikin þannig að í upphafi móts lágu fyrir leikdagar og tímasetningar, en leikið var á kvöldin á virkum dögum. Það voru því stundum nokkrir leikir að fara fram sama kvöldið og myndaðist oft skemmtileg stemm­ ing í klúbbhúsinu þegar leikirnir voru krufðir eftir hring. Riðlakeppnin kláraðist fyrir meistara­ mót og því bjart á kvöldin á meðan sá hluti keppninnar fór fram. Sigurlið hvers riðils komst áfram í 8 liða út­ sláttarkeppni, ásamt þeim tveimur lið­ um sem náðu bestum árangri í öðru sæti sinna riðla. Gefið var frí frá keppninni í júlí en útsláttarkeppni hófst eftir verslunar­ mannahelgi. Eftirfarandi lið mættust í átta liða úrslitum: Nafnlausa golffélagið gegn Brössum Árbæjargolf gegn Ásum Nalúk gegn FORE A-lið Hola í höggi gegn Minknum Nafnlausa golffélagið lét í minni pok­ ann gegn heldri kylfingum í sveit Brassa. Ásarnir trompuðu Árbæjargolf út úr keppninni með góðum sigri. Meistaraliðið frá árinu 2020 Nalúk háði mikla baráttu gegn öflugu liði FORE-manna, en hafði sigur í bráða­ bana. Dömurnar í Hola í höggi slógu í gegn og slógu Minkinn út úr mótinu. Það voru karlaliðin Ásar og Brassar sem mættust í öðrum undanúrslita­ leiknum og kvennaliðin Nalúk og Hola í höggi sem léku hinn leikinn. Ásar hafa mætt Brössum áður og hafa fastatak á þeim sem þeir slepptu ekki í þessum leik. Nalúk sigraði Holu í höggi og komast þar með í úrslit annað árið í röð. Úrslitaleikurinn var frábrugðinn öðr­ um leikjum í keppninni að því leyti að leiknar voru 18 holur í stað 9 og auk þess léku 8 leikmenn í hvoru liði. Leikinn var einn fjórleikur og 6 tví­ menningar eða alls 7 viðureignir. Ásar unnu fjórleikinn og komust yfir í viður­ eigninni, en Nalúk vann báða leikina í næsta holli. Þegar þriðja hollið kom í hús var einn sigur hjá hvoru liði og staðan 3-2 fyrir Nalúk áður en loka­ hollið kom í hús. Þar sigruðu Nalúkur hins vegar báða leikina og unnu því öruggan 5-2 sigur. Þær voru jafnframt fyrsta liðið til þess að verja titil sinn í liðakeppni GR.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==