KYLFINGUR 2021
94 I KYLFINGUR I Holukeppni GR var haldin í fyrsta sinn sumarið 2017 og er ætluð karl- og kvenkylfingum klúbbsins, 19 ára og eldri – allir geta verið með. Skráning hófst fljótlega eftir að vellir opnuðu í vor. Að skráningu lokinni var dregið um hvaða keppendur mættust í fyrstu umferð. Keppt er með bikar- eða útsláttarfyrirkomulagi, þannig að eftir hvern leika dettur sá sem tapar úr keppninni en sá sem sigrar leikinn kemst áfram í næstu umferð. Þannig eru leiknar 7 umferðir þar sem tveir keppendur komast í þá umferð og leika til úrslita. Gefinn er tímarammi fyrir hverja umferð. Keppendur koma sér saman um leikdag, leiktíma og völl innan tíma ramma viðkomandi umferðar. Gefnar eru að jafnaði tvær vikur til að ljúka leik í hverri umferð. Holukeppnin er leikin með forgjöf sem fer þannig fram að mismunur á leikforgjöf keppenda raðast á 18 holur sam kvæmt erfiðleikastuðli forgjafar eins og fram kemur á skor korti. Keppendur taka leikforgjöf samkvæmt forgjafartöflu. Keppendur velja sér teiga við hæfi og fá forgjöf samkvæmt þeim teigum sem leikið er af. Keppnin hófst um leið og vellir opnuðu í vor og lauk með úrslitaleik í lok sumars. Styrktaraðili keppninnar eins og mörg undanfarin ár er Bílaumboðið Askja sem er umboðsaðili Mercedes-Benz á Íslandi. Það voru 116 keppendur sem skráðu sig til leiks í vor. Sjá má í Golfbox forritinu hvernig keppnin gekk fyrir sig. Myndin sýnir hverjir komust í 8 manna úrslit og hvernig úrslit voru eftir það. Jón Kristbjörn Jónsson og Karl Vídalín Grétarsson léku til úrslita. Svo vildi til að þeir voru með sömu forgjöf og úrslitaleikurinn því leikinn án forgjafar. Um hörku viðureign var að ræða þar sem báðir léku vel. Leikurinn var jafn allan tímann og eftir 17 holur var allt jafnt. Þeir léku Sjórinn-Áin í úrslitaleiknum. Jón átti 6 metra eftir í tveimur höggum á 18. flöt en Karl var inná í þremur og átti um 15 metra pútt eftir fyrir pari. Þetta langa pútt setur hann niður og eftir tvípútt hjá Jóni fara þeir í bráðabana á 10. braut. Þar fékk Karl hins vegar skolla en Jón tryggði sér sigur í keppninni með pari. Að lokum eru vangaveltur um forgjöf og forgjafarmun keppenda. Enginn munur var á því hvort að forgjafarhærri eða -lægri keppandinn vann leikina. Jafnvel þó forgjafar munur væri mikill. Greinilegt var að það var bara dagsform keppenda sem réði úrslitum. Í þriðjungi leikja var for gjafarmunur keppenda 3 högg eða minna. Í þriðjungi leikja var forgjafarmunur yfir 8 höggum og þá í þriðjungi leikja lá forgjafarmunur á milli þriggja og átta högga. Það er ljóst að allir geta unnið þessa keppni, enda er það þannig að enginn hefur unnið keppnina tvisvar. Keppnin verður að sjálfsögðu haldin enn á ný á næsta ári. Mercedes-Benz bikarinn – Holukeppni GR Jón Kristbjörn Jónsson sigurvegari F.h.: Karl Vídalín Grétarsson og Jón Kristbjörn Jónsson að leik loknum. Kraftaverkakarlinn Kalli Jó Karl Jóhannsson hefur undanfarin ár haldið uppi fél agsstarfi heldri kylfinga í GR. Fræg eru bingóin sem hann heldur sex sinnum yfir vetrartímann og svo gerði hann sér lítið fyrir og kom á mótaröð fyrir 70+ í fyrra sumar sem nýtur vaxandi vinsælda. Hann veitir svo ótal verðlaun sem hann safnar sjálfur. Það er ekki amalegt fyrir GR að eiga svona menn að.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==