Landstólpi, Vélar og tæki 2020-2021

Verð miða við gengi EUR 152 Öll verð eru birt án vsk. „Arnar Bjarni Eiríksson, framkvæmdastjóri Landstólpa, fékk mig til þess að aðstoða við innflutning og sölu á grasfræi vorið 2005 og þá um haustið réði ég mig hingað í fullt starf. Sáð- vöruna hef ég haft á minni könnu allan tímann og sömuleiðis heyrúlluplast, milligerði, innréttingar og steinbita í fjós og ýmis- legt fleira. Svo fékk ég varahlutina í fangið og varð að setja mig inn í hluti sem áður voru býsna framandi en það lærðist fljótt. Samskiptin við bændur eru mikil og gefandi.“ Rúnar Skarphéðinsson, yfirmaður varahluta, hefur nú verið í liðlega 15 ár hjá Landstólpa. Í seilingarfjarlægð frá Rúnari á vinnustaðnum er Anton Kristinn Pétursson þjónustustjóri sem óhætt er að sæma líka nafn- bótinni reynslubolti eftir meira en sex ára nær samfellt starf í fyrirtækinu. „Ég byrjaði sem lagermaður og bílstjóri, starfaði síðan við akstursstýringu og varð svo þjónustustjóri eftir að hafa tekið aukakrók á ferlinum og unnið í nokkra mánuði í smíðafyrir- tæki í Noregi. Stór hluti af starfinu hér tengist mjaltaþjónum og mjólkurtönkum sem bændur hafa fengið frá Landstólpa, en vegna aukinna umsvifa véla- og tækjasölu hefur starfssvið mitt breikkað með tilkomu þess. Sjálfur er ég á bakvakt vegna mjaltaþjóna fjórðu hverju viku en í raun og veru er hugurinn alltaf hjá viðskiptavinum og búrekstri þeirra.“ Véla- og tækjafjölskyldan er stór og stækkandi Umsvif Landstólpa hafa aukist og margfaldast á öllum sviðum á tveimur áratugum. Það dugar að svipast um á vélasviðinu til að fá það rækilega staðfest. „Við höfum umboð fyrir fjölda tækja og véla sem eru hátt- skrifuð merki og þekkt hérlendis og erlendis. „Vélafjölskyldan“ okkar hefur fengið á sig ákveðna og sterka mynd en ég get samt lofað því að þar má gera ráð fyrir fjölgun og enn meiri umsvifum,“ segir Anton Kristinn og Rúnar bætir við: „Við vorum sérlega ánægð með að fá umboð fyrir McHale- vélar og tæki fyrr á árinu 2020. Þau eru þekkt fyrir gæði, góða endingu og lága bilanatíðni. Þeir sem eiga McHale fyrir eða eru að spá í að eignast slíkt tæki í fyrsta sinn horfa að sjálfsögðu mest til þess að þjónustan sé til staðar, virk og helst nærtæk. Árið 2021 leggst vel í Landstólpafólk. Þess er vænst að umboðs- fyrirtækið sé öflugt og sinni viðskiptavinum sínum af natni og umhyggju. Undir þeim væntingumætlum við hjá Landstólpa að standa.“ REYNSLUBOLTARNIR MUNA TÍMANA TVENNA TRAUST Í 20 ÁR Anton Kristinn Pétursson og Rúnar Skarphéðinsson.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==