Landstólpi, Vélar og tæki 2020-2021

Verð miða við gengi EUR 152 Öll verð eru birt án vsk. Landstólpi kynnir með stolti nýtt vörumerki á íslenskummarkaði, Gregoire-Besson. Þetta franska fyrirtæki hefur í áraraðir framleitt í miklu úrvali hágæða jarðvinnutæki, vendiplóga ásamt diska- og fjaðraherfum, sem þekkt eru um allan heim fyrir endingu og áreiðanleika. UNDIRBÚNINGUR SÁÐBEÐS Undirbúningur sáðbeðs felst í að vinna efsta lag jarðvegsins (5-10 cm) með tækjum búnum tindum, göddum, diskum eða aflúrtakstengdum tækjum, svo sem pinnatæturum. Mismunandi gerðum af keflum er oft bætt við til að auka við niðurbrot jarðvegs, tryggja betri jöfnun og þjappa ögn jarðveginn. Þetta ferli bætir samband jarðvegs og fræs auk þess að tryggja reglulega sáðdýpt. Aðalmarkmið aðgerðanna er að gera efsta lag jarðvegsins ákjósanlegt fyrir frjóvgun og vöxt. Fullkomið sáðbeð er forsenda góðrar uppskeru. Sáðbeðið er fyrsti viðkomustaður fræsins og með réttri meðferð aukast líkur á hraðri spírun og góðum vexti. AF HVERJU ER BETRA AÐ PLÆGJA? · Með því að plægja niður illgresi og plöntuleifar eru ólífræn eiturefni gerð óþörf. · Enduruppbygging jarðvegs; besta leiðin til að slétta spilduna. · Plæging blandar lífrænum efnum við jarðveginn og jafnar kornastærðina í honum sem stuðlar að jafnri og góðri rótardreifingu. Af sjálfu leiðir að franska fyrirtækið hefur safnað að sér stórum og sístækkandi hópi tryggra viðskiptavina. Gaman er að geta þess að plógar frá Gregoire-Besson hafa tvisvar sinnum slegið heimsmet í plægingu, síðast árið 2007 þegar 644 hektarar voru plægðir á einum sólarhring.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==