Landstólpi, Vélar og tæki 2020-2021

Verð miða við gengi EUR 152 Öll verð eru birt án vsk. Í þessum fyrsta vélabæklingi Landstólpa kynnum við nokkur vönduð og þekkt vörumerki sem fyrirtækið hefur umboð fyrir til sölu og þjónustu á íslenskummarkaði. Þar má nefna Tobroco Giant liðléttinga, Hispec haugsugur, Storth mykjudælur og hrærur, Bergmann hey- hleðsluvagna og síðast en ekki síst nýjasta merkið okkar, McHale! Þegar McHale kom til sögunnar í starfsemi Landstólpa fyrr á árinu 2020 stofnuðum við véladeild fyrir- tækisins og réðum til starfa tvo nýja sölumenn. Annar þeirra er stað- settur hjá okkur í Gunnbjarnarholti og hinn á Akureyri en hefur einnig aðsetur í Vélaval í Varmahlíð. Í sumar lögðum við mikla áherslu á varahlutaþjónustu gagnvart bændum og verktökum sem nota McHale vélar og teljum við okkur bara hafa staðið okkur nokkuð vel miðað við skamman aðdraganda þess að McHale fól Landstólpa að starfrækja um- boð fyrir sig. Mörg vörumerki Landstólpa eru vel þekkt á Íslandi en sum eru síður kunnugleg þrátt fyrir að vera rótgróin, virt og vinsæl víða annars staðar í Evrópu eða jafnvel um heimsbyggðina. Þetta á til að mynda við um Gregoire Besson, franskt fjölskyldufyrir- tæki sem sérhæfir sig í plógum, diskaherfum og fjaðraherfum og selur um allan heim. Sulky er annað franskt fyrirtæki sem við höfum umboð fyrir og kynnum. Sulky framleiðir áburðardreifara semmælst hafa mjög vel fyrir hjá þeim sem keypt hafa og notað á Íslandi. Okkar markmið er að bjóða vönduð vöru- merki á sanngjörnu verði. Vöruúrvalið í þessum bæklingi er ekki tæmandi og því hvet ég þig, viðtakandi góður, til að hafa samband við sölumenn Landstólpa og afla þér frekari upplýsinga eða fá svör við spurningum sem kunna að vakna. Við kappkostum að veita góða þjónustu og höfum reynslu og þekkingu til að aðstoða þig við að finna tæki sem þér henta best! Með góðri kveðju og ósk um gleðiríka jólahátíð og gæfuríkt nýtt ár. Eiríkur Arnarsson, forstöðumaður landbúnaðarsviðs Landstólpa Ágæti viðtakandi ÚRVALSVÉLAR OG ÁRAMÓTATILBOÐ Í bæklingnum kynnum við sérstök áramótatilboð sem gilda til 5. janúar 2021. Greitt er 10% staðfestingargjald við pöntun en við afhendingu greiðast eftirstöðvar kaupverðs.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==